
Hildur Theodóra 6 ára.
Jæja þá er afmælispartýið hjá Hildi búið og daman orðin 6 ára gömul.
Þemað í ár var "You're a star" og settum við svarta ruslapoka fyrir gluggana í kjallaranum, keyptum diskó ljós og höfðum gott gólfpláss þar sem krakkarnir gátu dansað, farið í leiki og kareoke. Það var voða vel heppnað. Einnig var ég með T-shirt design þar sem ég keypti svartan bol á hvern krakka og síðan klippti ég glitrandi efnisbúta niður, lét þau hafa fatalím og síðan var skreitt. Það kom mjög vel út.
Eitt í viðbót sem að sló í gegn. Ég bjó til enskan texta við íslenska leikinn "Í grænni lautu þar geymi ég hringinn" og kenndi þeim þann leik. Þið munið öll eftir honum er það ekki???
Enski textinn var svona:
In my hand
I keep the ring
that you gave me
ohh where is it now
that you gave me
ohh where is it now.
Já þetta sló svona ægilega í gegn. Hahaha það sem ég hef ekki látið þessi amerísku börn gera. Þau kunna 1-2-3-4-5 dimmalimm (sem þau þekkja reyndar sem 1-2-3-4-5-stay alive) og síðan kenndi ég þeim teyjó. Það var svaka sport.
Þegar allir voru síðan að háma í sig pizzu og afmælisköku spurði vinkona Hildar hvernig nafnið hennar væri sagt á íslensku. Upp úr því þá var ég í því að segja öllum hvernig nafið þeirra væri sagt á íslensku og hef ég nú sjaldan séð krakka í jafnmiklu hláturskasti.
Þá er það bara Kristínar afmæli eftir en litla hnátan er að verða 2 ára gömul.
Annars lítur út fyrir að Kristín ætli að erfa pöddu áhugamál Hildar því hún eltir stóru systir út í garði til að fá líka að halda á pöddum og þegar hún sér eina þá segir hún "bug ohhh cute". Eina sem að hún virðist vera smeik við eru húsaflugur. Vona samt að hún taki ekki upp á því sama og Hildur gerða þegar hún var 3 og hálfs og það var að reyna að klappa hunangsflugu. Óhætt að segja að sú fluga var ekki sæl með það og lét hana finna fyrir því. Hún hefur því ekki reynt það aftur.
Jæja , ég er með þennan dýrindis pestó/jurta kjúlla inn í ofni sem fer að verða til. Best að fara að sinna meðlætinu.
3 comments:
Mér sýndist fyrst standa þarna að þú værir með Perestrojka Júlla inni í ofni. Til hamingju með stelpurnar báðar, já og bara kallinn líka!
Hahahahaha. Ég frussaði næstum því pepsi one sem að ég var að drekka yfir allt gólfið við að lesa þetta komment. Perestrojka Júlli var fínn á bragðið;)
Ýkt fyndið
til hamó, verd alltaf pínu döpur thegar eg geri mer grein fyrir thvi hvad thad er langt sidan vid hittumst, eg meina stelpurnar eru ad verda fullordnar. En thu ert sko greinilega megamamma og kannt ad halda afmaeli, aetla ad stela bolahugmyndinni i afmaelinu hennar dagrunar...hmm samt ekki fyrr en hun verdur sex ara....
xxxxx
Post a Comment