Sunday, March 04, 2007


















Ég efast um að margir viti þetta um okkur en Armand Assante hefur lengi verið hluti af okkar daglega lífi. Fyrir 25 árum síðan vorum ég og Högni að horfa á einhverja bíómynd með honum og varð mér á að láta út úr mér þessi orð "Armand Assante er alltaf allur á iði."
Þetta byrjaði ósköp sakleysislega þegar Högni spurði mig stuttu á eftir þegar ég átti í erfiðleikum með að koma mér vel fyrir í sófanum "ertu öll á iði eins og Arman Assante?" en upp frá því hafa allir fjölskyldumeðlimir fengið að heyra um Armand Assante ef þeir geta ekki setið stilltir og prúðir eða þurfa að vera stanslaust á hreyfingu ;)
Í gær heyrði ég síðan nýjustu útgáfuna á honum Armand Assante vini okkar þegar Högni var að ræða við Kristínu "ertu nokkuð að láta illa eins og Armand Assante?"

Á okkar heimili er Armand Assante því alltaf allur á iði og lætur illa. Ef hann bara vissi.

Er einhver svona sérstakur leynigestur hluti af ykkar lífi?

6 comments:

Anonymous said...

aaaahahahahaha!!
Það er engin ENGIN jafn klikkuð og þið!!
Ohh þið eruð dásamleg...og til að svara spurningunni..nei!

brynjalilla said...

Eh sko eins og thú veist elskan thá hefur Hemmi Gunn verid lengi hluti af okkar lífi nú og jesús audvitad!

Anonymous said...

Það eru fáir svona skrítnir hehehehe...

Ég man nú ekki eftir neinum sérstökum.

Anonymous said...

Á mínu heimili hefur dularfullur maður deilt lífi sínu með fjölskyldumeðlimum. Hann hefur aldrei gefið upp sitt rétta nafn en ber ábyrgð á hinum ýmsustu apalátum sem grípur stundum heimilfólkið mitt og lýsir sér með óheftri lífsgleði og aulabröndurum.
Maðurinn er kallaður ruglurokkur.

brynjalilla said...

Æi hvað var gman að heyra frá ruglurokki sem einmitt kemur líka í stundum heimsókn hingað til okkar í Svíþjóð, gaman að því hvernig orð breiðast út hvað þá menn.

Fnatur said...

Ruglurokkur, Jesú, Hemmi Gunn og Armand Assante......kannski þeir séu fjarskyldir frændur?