Thursday, May 03, 2007

Græni pokinn.



Áðan fór ég að hugsa um litlu grænu pokana sem að maður fékk alltaf þegar maður keypti sér bland í poka á Íslandi. Eru þeir enn notaðir?
Þeir voru fullir af góðgæti eins og piparmolum, litlum fylltum súkkulaðidýrum, bingó, bananastykkjum, gömlum og góðum hraunum, siríuslengjum ásamt mörgu öðru girnilegu. Skrjáfið í græna pokanum vekur upp ljúfar minningar. Ég man eftir okkur vinkonunum hlaupa út í búð og fá okkur einn grænann með videóspólunni. Ein vildi ekki hlaup, önnur vildi bara hlaup, þriðja vildi bara súra mola og sú fjörða enga súra heldur bara piparmola. Í minningunni bað ég oftast um ekkert hlaup, bara súkkulaði en ekki með neinu hörðu í og svo mikið af piparmolum.
Mikið hlýt ég annars að vera svöng núna fyrst ég er farin að skrifa um græna nammi skrjáfpoka haha.
Ekki spurning um að það verði kominn tími á að fá sér einn grænann þegar ég skrepp til eyjunnar fögru í sumar.

10 comments:

imyndum said...

Bananastykki, bingó og piparmolar þvílíkur unaður!

Anonymous said...

Minn græni poki er með:
1 bingó
1 bananastykki (Lindu)
10 skólakrítar
5 piparmolar

Ég get alveg sent þér einn grænan eins og forðum daga þegar ég fór í spes sjoppu í Grafarvogi til að finna sérstakan sleikjó sem þig langaði í.
LOVE SYS

Fnatur said...

hahaha var búin að steingleyma blessuðu skólakrítunum. Nei ég lifi það nú alveg af að bíða þar til í sumar með að fá einn grænann, takk samt fyrir fallegt boð ;)

Knús, lille

Anonymous said...

Í Hagkaupum (já, ég kann að beygja ;-)) er komið sérstakt "Nammiland", heil "aisle" bara með sælgæti en reyndar engir grænir pokar. Þar eiga húsmæður í nammidagsleiðangri fótum sínum fjör að launa á hverjum laugardegi. Legg til eina slíka ferð til að lækna heimþrána þína sæta lille Fnatz ;-)

Fnatur said...

Ertu ekki að grínast Kleinz!!! Heil "aisle"...það er yndisleg geðveiki að frábæru stigi.
Já þarf að skella mér í einn þannig leiðangur í sumar (en bara einn mhúahahahahaha).

brynjalilla said...

skylduát í grænum poka eður ei:
pipp-piparmyntusúkkulaði
Lindukaffisúkkulaði
Lindumarsipansúkkulaði
Bananastykki í Bakaríinu við Brúna
Heitt súkkulaði á Bláu Könnunni
VanilluSkyr

Anonymous said...

mmmmm
Var búin að gleyma Pipp súkkulaði. Best er að geyma það í ísskáp í smá stund samt áður en það er etið. Randalínur frá Axel bakaríi eru líka í miklu uppáhaldi hjá mér.
Vissuð þið að í dag er alþjóðlegi non-megrunardagur?
Ásta

Anonymous said...

Verið að missa sig í draumórum hehe
Það eru komnir rauðir pokar alveg eins og grænu pokarnir voru. Höfða nú meira til mín. Rautt virkar einhvern veginn betur ;)
En hvernig er það kemur þú ein í sumar eða öll fjölskyldan.
Væri nú gaman að sjá dömurnar þínar. Hef ekki séð Híldi síðan ég var að passa hana í rimanum hjá þér;)

Fnatur said...

Hæ Anna. Ég og Kristín komum en ekki Hildur. Hildur ætlar til Idaho að heimsækja góða vini sína þar. Við verðum í 2 vikur og mestann hluta ferðarinnar á AK ;)

Kannski náum við að að fara í sund saman?????
Já eða fá okkur einn grænan saman (já eða rauðan haha).

Fnatur said...

Já Lindu Marzipan súkkulaði........ohhhh það er BEST Brynja.