Í gær varð hún Hildur okkar 7 ára gömul. Við byrjuðum daginn á að halda smá morgunveislu þar sem við gæddum okkur á hornum, kókosköku og amerískum cup cakes. Eftir að hafa sungið afmælssönginn og troðið okkur út af sætabrauði fékk daman að opna nokkra pakka. Seinna um daginn fórum við síðan á lítið leiksvæði þar sem við hittum vini og kunningja og áttu notalega stund með þeim. Eftir þriggja stunda skemmtilega útiveru drifum við okkur heim og elduðum uppáhaldsmatinn hennar Hildar "ala nautasteik með bernessósu". Högni dreif sig síðan með Hildi og Köru frænku (sem að er í heimsókn hjá okkur) á háskólsvæðið hér í Fort Wayne að horfa á flugeldasýningu sem var víst ein lengsta sýning sem þau höfðu séð. Ég og Kristín vorum of þreyttar til að skella okkur með. Á föstudaginn fær hún Hildur síðan að halda vinkonu afmæli á vísindasafninu hér í Fort Wayne, mjög foreldravænt ;)
7 ár síðan við vorum í litlu sætu íbúðinni okkar í Laufrima. Tíminn líður allt of hratt.
13 comments:
til hamingju þið öll, gaman að sjá gjafirnar. Smásjá og hnattlíkan, algjör micro og macro ævintýraheimur. Hlakka svo til að sjá ykkur!
Til hamingju með stelpuna.
Afmæli á vísindarsafninu, snilld!
Takk fyrir kveðjurnar kæru ofurkonur.
9 daga í Íslandsferð;)
Kærar kveðjur til Hildar, er stolt að eiga svona glæsilega frænku.
Ásta stóra frænka(1 dagur í gám)
Til hamingju með þessa flottu afmælisstelpu.
kær kveðja
Áslaug
Kæra Fanney, til hamingju með afmælisstúlkuna. Stutt síðan þú varst í Laufrima, ég var nú að rifja upp um daginn stundir okkar saman í Grænugötu og Eiðsvallagötu :) manstu þegar þú spilaðir tónlist fyrir mig þegar ég var að labba heim til mín :) good old times. Kv. Sara
Hæ hæ innilega til hamingju með afmælisbarnið. Það virðist eitthvað svo stutt síðan maður var að passa litla kúluvarpan sem var þá bara átta mán í rimahverfinu. Dísús hvað tíminn líður! Hún er nú ekki mikið eins og kúluvarpi núna hehe meira svona ungfrú;)
Hæ Sara mín. Takk fyrir kommentið. Já ég man sko heldur betur eftir því þegar ég spilaði tónlist fyrir þig á meðna þú rölstið yfir Eiðsvöllinn haha. Við vorum mega svalar;)
Ég man líka vel eftir því hvað við átum mörg tonn af gula Caramel súkkulaðinu;)
Hæ Anna og Áslaug. Takk fyrir kveðjurnar. Alltaf gaman að heyra frá ykkur skvísur.
Nú eru bara nokkrir dagar í hitting hlakka svo til að hitta ykkur Brynju og alla fyrir norðan. Til lukku með dótturina um daginn.
Já Þórdís. Er ferlega spennt yfir hittingnum:)
Er Hildur ekki bara að verða 8 ára, vil nú endilega fara að sjá þig í bloggheimum stelpan mín
Já búin að vera í lööööööngu fríi beibe :)
Þetta er allt að koma.
Post a Comment