Friday, October 19, 2007

Nóttin langa liðin.

Það er óhætt að segja að nokkur hár hafi risið á höfði mínu í gærkvöldi. Tornados og ægileg þrumuveður voru það sem að héldu vöku fyrir mér.
Himininn var sérkennilegur á litinn og lýsti upp reglulega eins og stríð væri í nánd. Eftir að veðurfréttamaðurinn sagði að ef að tornados myndu myndast þá fengju við litla sem enga viðvörun þá tók ég þá ákvörðun að færa mig og stelpurnar niður í kjallara og lúra þar.
Ég færði litlu skottin mín tvö steinsofandi niður í kjallara (meira hvað þær geta sofið í miklum látum) og þá tók ég mig til og fyllti á alla vatnsbrúsa í húsinu, færði allar niðursuðudósir, kex, vasaljós, föt, krakkabækur og fleira sem ég taldi okkur þurfa ef svo skyldi fara að húsið myndi verða rifið upp frá grunni. Eftir að hafa lokið undirbúningsvinnunni þá rölti ég niður í kjallara og lagðist undir feld.
Okkur til mikillar gleði vöknuðum við í morgun við að sólin skein kát og glöð inn um gluggann og þakið var enn á húsinu.
Í dag er því verkefnið að ganga frá útilegudótinu haha.
Better save than sorry;)

6 comments:

Magnús said...

Mér finnst vanta svona hérna. Ég sakna þess líka þegar varð rafmagnslaust á veturna.

brynjalilla said...

þetta hljómar samt eitthvað svo dásamlega ævintýralegt en auðvitað af því allt fór vel. Pottþétt að þetta eigið þið eftir að muna eftir alla ævi. En talandi um ævintýri, man að á svona óveðursstundum í æsku kúrði ég mig undir sæng, íklædd lopapeysu og ullarsokkum. Klyfjuð vasaljósi Enid Blytonbók og tuggði harðfisk. Fannst svo gott og þykir enn að hlusta á óveðurshljóð, sérstaklega nálægt sjó. Góð minning, gulls ígildi.

Anonymous said...

á svona stundum vil ég frekar að þú búir í FLorida á því svæði sem er öruggt gagnvart óveðrum, var það ekki í norðurhlutanum?
kær kveðja,Ásta sys

Fnatur said...

Maggi færðu ekki nóg af skítaveðir þarna á eyjunni fögru?

Brynja ég væri sko alveg til í að kúra með vasaljós og lesa eina Enid Blyton bók með þér í kvöld haha.

Nei Ásta mín það er allt í verðurrugli út um allt Florida fylki, bara eitthvað minni líkur ef þú býrð ekki upp við strandlengjuna þar. Einmitt þessa sömu nótt og við sváfum í kjallaranum fór Tornado í gegnum Pensacola FL og rústaði ansi mörgu þar.

Anonymous said...

Einkennilegt hvað fólki finnst þetta heillandi. Held ég myndi fara á taugum. Hvað þá þegar húsbóndinn er ekki heima. Mér mynda líða mun betur að vita af ykkur í rigningunni hér;)
Sjáumst á msn;)

Thordisa said...

úff hér er rignin og rok og ekki mjög næs væri mest til í að vera heima undir sæng. Ekki langar mig í svona hvirfilvind takk fyrir skil þig vel að hafa verið nett á taugum.