Saturday, December 08, 2007
















Mikið er ég glöð að það er desember.
Ég held að það sé ljósadýrðin sem skín frá öðru hverju húsi, heitu kakóbollarnir sem að eru fleytifullir af rjóma, jólasmákökurnar og blessuð börnin sem að gera þennan mánuð svona yndislegan.
Ég ákvað þetta árið að hefja jólainnkaupin mjög snemma til að það yrði ekkert stress og ég gæti bara notið þess að slaka á og troða mig út af góðgæti. Planið fram að þessu hefur virkað. Jólasnjórinn kominn. Ísbirnirnir Knútur og Bjössi skína skært út í garði á kvöldin og svo fallegt að horfa út um gluggann eftir að myrkur skellur á.
Gleðilegan desember :)

3 comments:

Anonymous said...

"ákvað ÞETTA árið að hefja innkaupin snemma" hi hi hi Fnatzý mín....þekki engan sem verslar jólagjafir jafn snemma og þú ;-). En..jú ég var snemma í því þetta árið líka...nánast búin með gjafirnar, smákökurnar voru bakaðar og borðaðar í nóvember (!) og nú eru bara rólegheit, tónleikar og yndislegheit framundan.
Knús
Ragnheiður

Thordisa said...

Er bara rétt byrjuð að kaupa gjafir en klára það vonandi sem fyrst. Ekki búin með kortin en þó svo slatti sé eftir þá ætla ég bara að njóta þess að hafa það gott og ekki stressa mig á neinu.

brynjalilla said...

aha það kemur upp í mér keppnisskap, ég mala ykkur. Í sumar nefnilega dreifði ég innpökkuðum jólagjöfum til ættingja og vina á Íslandi. Viðurkenni reyndar að ég vildi óska að ég gæti notað desember í annað en gerð ýmissa forvarnar- og rannsóknaráætlana en þessvegna tek ég út jólatripp þegar 23. des rennur upp og óverdósera á jólunum og hef uppi sterkar áætlanir þó ekki vísindalegar til að njóta til fulls. Knús elsku Fanney og gangi þér vel í prófunum!