Thursday, October 23, 2008














Geyma, henda eða gefa?

Hér fylgir mynd af dúkkunum Molly og Kit. 
Hildur og Kristín hugsa afar vel um þessar dúkkur sínar og vel búið um þær á hverju kvöldi.
Áður en ég fór að sofa í gær leit ég inn í herbergin hjá þeim báðum og blasti þá þessi sjón við mér.
Dúkkurnar í kjólum af mér frá því að ég var lítið ungabarn. Mikið hafði ég gaman af því að sjá þessa kjóla frá árinu 1975 lifna aftur við í leik. 
Það hangir einmitt mynd af mér upp á ískáp í þessum sama appelsínugula kjól.
Mér var hugsað blítt til Jónu systir sem að geymdi þessa kjóla í mörg ár og passaði vel upp á þá.

7 comments:

Anonymous said...

oh hvað ég sé þig fyrir mér með ljósa hárið þitt og bláu augun í þessum kjólum, viss um að þessi appelsínuguli hafi sérstaklega prýtt þig. Það er líka svo fallegt að leikföng sem þú handlékst í æsku skemmti dætrum þínum í dag, hugsa sér öll fallegu handtökin sem búa í þessum dúkkum.
love Brynja

brynjalilla said...

var að fatta að dúkkurnar voru ekki þínar, en efast samt ekki um að í þeim búi falleg handtök, knús á línuna elsku músalús

Anonymous said...

Æji elsku Fanney.
Þetta er ekkert smá yndislegt að sjá þessa mynd.
Mér finnst eins og það hafi verið í gær að þú skottaðist í þessum kjólum, pínu lúsímús.
Love you sooooo
Bigg siss ;-)

Anonymous said...

Heyrðu ég man einmitt eftir þessum kjólum! Mikið var gaman að sjá þá!! Alveg yndislegt!!
Yndislegt að sjá Molly og Kit í þessum kjólum , þú mátt aldrei henda þeim!!
Ástasys

Anonymous said...

Kemur yfirskriftin úr "Sex in the city"? Henda/Gefa /geyma?
Ásta

Anonymous said...

Ég auglýsi eftir kjólum frá 1972 sem ég gekk í!! Hvað segir Jóna núna? BÖHHHHBÖHHH :)

Thordisa said...

Elsku Fanney mín mikið er langt síðan ég hef heyrt í þér. Það er flott að sjá dúkkurnar í þessum kjólum ég geymdi mína gömlu sparikjóla og lét dætur mínar vera í þeim fannst þeð frekar flott. Hér er vetrar verður og ég búin með miðannaprófin og er ansi ánægð með útkomuna svo fyrsta önnin er bara að koma vel út. Hafðu það nú sem allra best mín kæra.