Jæja eftir mikið tuð og nöldur frá ákveðnum aðilum þá ákvað ég að láta undan og setja upp mitt eigið blogg. Ég hef verið að stússast margt síðustu daga. Finna útskriftargjöf handa Jónu big sis sem er að útskrifast úr hjúkrunarfræði. Semja cheeseeeee ljóð í kortið til Brynju vinkonu því hún er nú að halda listasýningu á Akureyri þann 9. júní og síðan 35 ára gömul geit nokkrum dögum síðar. Maður verður nú að senda henni eitt kort með lakkasakkalikkalá ljóði í. Hún er nú sjálf svo mikill ljóðasnillingur huhuummm. Annars var ég mjög hrifin af geitinni hans Magga mörgæsar. Ég og Högni ætlum sko litl að kaupa eina svona geit. Verst að þeir séu ekki með svona geitalista þar sem maður getur valið sterklegustu og auðvitað fallegustu geitina sjálfur. Nei það er víst of mikil til ætlast. Er samt viss um að það myndu seljast fleiri geitur hjá þeim ef þeir gerðu það.
Ein spurning að lokum.
Ef að skjaldbaka er skeljarlaus hvort er hún talin vera heimilislaus eða nakin?
Tuesday, May 30, 2006
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
6 comments:
Nakinn
Umfram allt er hún dauð. Skjaldbökur geta ekki farið úr skel sinni þar sem hún er í raun hluti af beinagrind þeirra (aðrir mein að skelins sé reyndar frekar hluti húðar). Skeljarlaus skjaldbaka er dauð skjaldbaka.
Hún er svo auðvitað nakin líka (eins og flest dýr önnur en maðurinn og raðgreiðslurottur eins og Paris Hilton á. Heimilisleysið fer svo eftir því hvort hún er gæludýr eður ei.
Hæ sys,
Komdu með fleiri spurningar,
Á
Ekki nema þú svarir þeim middle sis hehe.
Kv, lille
hlakka til að lesa ússíbússibakkaláljóðið og er ótrúlega sátt við bloggið þitt.
knúsírúsíbúsíbátt
bloggið hennar fnötu
safaríkt og lipurtátt
ljóðfagurt með meiru
eitt er víst að ekki mátt
sýkja það með veiru.
jesús minn hvernig er hægt að vera svona góður í ljóðgerð?
Ég bara skil ekki Brynja mín hvernig þú ferð að þessari snilld.
Post a Comment