Sunday, June 04, 2006

Maggi var með þennan lista fyrir nokkru á blogginu sínu. Ég hef alltaf haft gaman af svona listum þannig að ég ákvað að skella honum hér inn á með smá breytingum.


Settu nafnið þitt í kommentakerfið og…

1. Ég segi þér eitthvað handahófskennt um þig.
2. Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig.
3. Ég segi þér hvaða bragð minnir mig á þig.
4. Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér.
5. Ég segi þér á hvaða dýr þú minnir mig.
6. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef velt lengi fyrir mér um þig.
7. Ég segi þér hvaða frægu manneskju þú minnir mig á.
8. Ég segi þér hvaða drykkur þú ert.
9. Ég segi þér hvaða fylki í USA þú passar best við.
10. Ég segi þér hvaða morgunkorn þú ert.
11. Ég segi þér hvaða kvöldmatur þú ert.

Ein spurning að lokum svona til gamans.
Ef ólívu olía er búin til úr úr ólívum, úr hverju er þá barna olía búin til úr?

25 comments:

Anonymous said...

Ef ólívu olía er búin til úr úr ólívum, úr hverju er þá barna olía búin til úr?

Já, sannleikurinn er sá að barnaolía er búinn til úr... Þurkuðum barnatárum. :-)

Eða eins og segir á badyoilinfo.com þá: "The baby tears may not be cleaned with water to remove pesticides, dirt, etc. Rocks and Sand will quickly wear out a centrifugal decanter or oil separator, reducing life span of thebaby oil from 25 to as little as 5 years."

Anyways, til hamingju með nýja bloggið...

Kveðja,
Gunnar + Erla perla

Kolla said...

Endilega skelltu mer a thennan lista, mest spennt ad heyra hvernig morgunkorn eg er.

til hamingju med bloggid!

Kolla

Anonymous said...

Kolla.

1. Vibba klár vísindabeib.
2. Romi and Michelle
3. Blueberry muffin bragð.
4. Partý hjá Rakel í NC.
5. Skógarþröst.
6. Hefur þig einhvern tíman langað að gera eitthvað annað en að verða doktor í vísindum?
7. Einhver blanda af Jennifer Aniston og Lucy úr 7th Heaven þáttunum.
8. Coke REGULAR.
9. Sennilega bara IL því þar áttu nú heima.
10. Eitthvað klassískt, ekki of sætt því þú ert nú ekki mikil súkkulaðikerla og með bláberjum í.
Já ég veit, ekki spurning:
Kellogg's Fruit Harvest Strawberry Blueberry korn.
11. Sushi (ekki erfitt það val).

Anonymous said...

Gunnar.
1. Ljúfur drengur með gott hjarta.
2. In the name of love með U2 (þú söngst það einu sinni í kareoke partíi) svaka cool.
3. Eggjahræra.
4. Pínu lítið baby vafinn inn í teppi, mjög mikið krútt.
5. Ljósann labrador.
6. Finnst þér leiðinlegt að tala í síma?
7. Alla trommuleikara í ameríkum strákarokkböndum eins og Sum 41, Good Charlotte ofl.
8. Mjólk.
9. Minni borgir/bæji í Georgia (ekki Atlanta). Rólegheit, vinalegt, gott veður og ekkert stress.
10. Honey Nut Cheerios (golden and sweet).
11. Hakk og spagetti.

Anonymous said...

Blessuð lille siss ;-)
Til hamingju með bloggið...já skelltu mér líka á matseðilinn ég er ekkert smá spennt að vita hve djúsí ég sé.
Luv Bigg siss

Fnatur said...

Jóna big sis.

1. Þú ert ótrúlega leggjalöng.
2. My fathers eyes með Eric Clapton.
3. Marenstertu bragð.
4. Einhver óljós minning af þér í herberginu þínu í Byggðavegi.
5. Gíraffi og fuglinn með löngu rauðu leggina sem ég veit ekki hvað heitir eru þau dýr sem að minna mig á þig.
6. Finnst þér leiðinlegt að hringja í fólk?
7. Sharon Stone.
8. Swiss Mokka.
9. Colarado. Nóg af fjöllum, sveitafílingur og fullt af útivistarsvæðum fyrir þig og þína. Gott veður á sumrin og snjór á veturna.
10. Weetabix.
11. Fiskibollur með smjöri og kartöflum.

Anonymous said...

This should be interesting....;-)
Láttu vaða tjééllling!!
Til hammó með bloggið annars ;-)

brynjalilla said...

frábært til hamingju með bloggið fnatalillan mín, elska þessa menningu að vera í samskiptum við vini mína með þessum hætti. Hlakka til að vita hvaða kvöldmáltíð ég er!

Fnatur said...

Ragnheiður (Högna systir fyrir þá sem eru forvitnir).
1. Þú ert með fallegustu hundabetlaugu þegar þú biður mig um "fnatakaffi".

2. When you say nothing at all með Ronan Keating.

3. Alla vegna ekki mysingsbragð þú þarna mysingshatari. Skyrbragð minnir á þig.

4. Í rússkinnsjakka með mega kögri á ermunum. Varst líka með frekar miklar krullur en hver hefur ekki verið með það hehe. Þú varst í göngugötunni á AK.

5. Uglu.

6. Af hverju ertu aldrei með skærann varalit nema þegar ég mála þig?

7. Winona Rider.

8. Þú ert kaffi með mjólk út í.

9. Þú værir fín í Californiu. Nóg af pæjubúðum til að versla í, ekki of heitt, fallegur lárunna/vínekru gróður sem myndi minna þig á Reykjavík án kuldans, mikill metnaður í fólki en ekki of stuck up.

10. Rúsínu og hnetu múslí.

11. Fancy rjóma-osta pasta sem þú úðar tómatsósu yfir haha.

Anonymous said...

Brynja lilla.
1. Þú ert ekkert smá hæfileikarík listakona.
2. These boots are made for walking með Nancy Sinatra (EKKI JS).
3. Hvítvínsbragð
4. Á hjónagörðum í dökkbrúnu dragsíðu pilsi og brúnum og dökkappelsínugulum rúllukragabol.
5. Hvíta kanínu.
6. Af hverju villt þú ekki búa í Reykjavík?
7. Reese Witherspoon.
8. Hvítvín ekki spurning.
9. Idaho. Sveitafylki með fjöllum til að ganga á, árstíðum og víst mikilli víðáttu og náttúrufegurð.
10. Hafragrautur (telst það ekki sem korn áður en hann er soðinn).
11. Pizza með fullt af ólívum.

Bromley said...

Ég líka ég líka!!
Ég vil vera memm. Hvaða fylki er ég?

hin sys

Magnús said...

Hei! Ég er með mar!

Bromley said...

Barnaolía? Við Ásta höfum góða reynslu af því að blanda saman Sainsbury´s Bonus vaselini við lárviðarlauf og negulnagla. Þetta látum við marenerast í 4 vikur og berum síðan á Kalla litla með góðum árangri. Mælum með þessu.
kv Kalli

Bromley said...

Af gefnu tilefni langar mig að segja að ég er líka með mar - á hægri rasskinninni. Ég rak mig harkalega í rúmstokkinn, reyndi að setja plástur á þetta, en það var of mikið af hárum svo ég þurfti að raka marið.
kv Kalli klikk

Magnús said...

Hei, óþarfi að snúa út úr fyrir manni mar.

Anonymous said...

Hæ Fanney mín, til hamingju með þessa blogg síðu, hún er flott:) kv. Sara Lind

Anonymous said...

Ásta "middle sis" Bromley.
1. Þú ert bæði brilliant fiðluleikari og tannlæknir og það er ekkert smá gaman að djamma með þér.
2. NOTHING'S GONNA CHANGE MY LOVE FOR YOU með Glenn Medeiros.
3. Royal karamellubúðinsbragð.
4. Í Heiðarlundinum að leika við Dagmar frænku.
5. Bröndóttan heimiliskött.
6. Af hverju ertu svona rosalega góð í fín hreyfingum á fiðlu og sem tannlæknir en ekki með make up (það er mér hulin ráðgáta hehe)?
7. Kate Hudson.
8. Baileys ekki spurning.
9. Tennessee. Þar eru fjöll, víðátta, hlýtt veður, mildir vetur, bjart, sólríkt, mikill gróður og lítið stress.
10. Súrmjólk með weetabix og púðusykri.
11. Þú ert mexikó soft taco með osti og hakki steikt á pönnu.

Anonymous said...

Kalli "stóri" Bromley.
1. Ég hef aldrei hitt manneskju á æfi minni sem les jafn mikið og þú.
2. Can't Get You Out Of My Head með Kyle Minogue.
3. Pepsi Max af því að þú drakkst það allt frá mér þegar ég var síðast hjá ykkur í Rvk (enn bitur eins og þú heyrir hehe).
4. Virðulegur á útskriftardeginum ykkar Ástu úr HÍ.
5. Þú minnir mig á kameldýr.
6. Hefur þú einhverntíman fengið þér permanent?
7. Bill Pullman ekki spurning.
8. Kaffi.
9. Minnesota. Kaldir en bjartir vetur, mild sumur, Mayo Clinic og semi "sveitó".
10. Brauð með Marmite haha. Nei þú ert Honey nut Cheerios.
11. Þú ert íslenskt rauðvínlegið lambalæri.

Hvernig er síðan mar-----ið hehe?

Anonymous said...

Kalli! Hver nennir að láta eitthvað marenerast í 4 vikur ef það er ekki hægt að borða það?

Anonymous said...

Maggi.
1. Þú ert með þeim "eðlilegri" úr gömlu vinagrúppunni.
2. Allt með HAM.
3. Allt bland í poka nammi minnir á þig.
4. Man eftir þér úr Gettu betur.
5. Mörgæs ekki spurning.
6. Af hverju í ósköpunum geturðu bara fílað táfílurokk en ekki góða blöndu af táfílubumburokki og froðumegapoppi?
7. Þú ert blanda af Freddie Prinze Jr og William Baldwin.
8. Þú ert Coke.
9. California. Easy going lið þar með alls konar skoðanir. Lítið af þröngsýnum hálfvitum sem myndu fara í taugarnar á þér og milt og gott veður.
10. Þú ert cookie crisp.
11. Pizza.

Andrea said...

Úúhh mí tú, mí tú! Alltaf verið sökker fyrir svona :)

Til lukku með bloggið skvís!

Kv,
Andrea.

brynjalilla said...

ekkert smá langt síðan ég hef hlustað á my boots are made for walking, takk fyrir að minna mig á það og mikið hef ég nú verið hugguleg í brúna rúllukragabolnum! miss you

Anonymous said...

Andrea.

1. Þú eldar bestu rif í heimi.
2. My my my með Armand Van Helden.
3. Pepsi One bragð.
4. Heima hjá mér í Florida með Essý að borða brownies og fleira.
5. Skrautfugl.
6. Heldur þú að þú munir einhverntíman flytja aftur til Íslands?
7. Rachel Bilson úr the OC.
8. Pepsi one.
9. Eigum við ekki bara skella okkur á NJ fyrst þú býrð þar.
10. Cheerios.
11. Þú ert veisluhlaðborð með allskonar gómsætum réttum.

Anonymous said...

Hel-BÍP táfílubumburokkið hans Magga átti víst að vera TÁFÝLU með Ý-i.
Nú geta allir verið glaðir.

Kv, Fnatz

brynjalilla said...

jæja dúllan mín dæ á ekki að fara að blogga meira?