Nú er ég búin að vera "lokuð inni" í 6 daga. Er með eina litla lasarus prinsessu sem er búin að vera með leiðinda flensuskít.
Óhætt að segja að gráu hárin hafa aukist á þessum 6 dögum og ég er orðin eitthvað mygluð að innan af súkkulaði áti og hreyfingaleysi.
Er búin að panta tíma hjá lækni í dag, vonandi getur hún eitthvað flýtt fyrir bata hjá litlu músinni minni.
Högni er á leiðinni til Englands á morgun það eru því mörg kerlingamynda kvöld fram undan. Mike vinur minn mun sennilega koma eitthvað í heimsókn á meðan Högni er í burtu en hann er mjög svalur gaur, já bara ferlega fínn og sannur vinur. Hann var duglegur við að sjarma Ástu og Ragnheiði upp úr skónum í Florida.
Annars er allt hvítt úti. Minnir mikið á Akureyri á fallegum vetrardegi. Ég reyni að láta sumarstelpuna ekki koma upp í mér og grömpast út í snjóinn en stundum sest hún á hægri öxlina og fer að þusa í eyrað á mér einhverja sól og sumar drauma. Annars finnst alltaf jafn fyndið að sjá sumarvörurnar streyma inn í búðir hérna í janúar. Bikini, stuttbuxur, minipils, sumarkjóla, hlýraboli...you name it...það er komið í búðirnar núna. Ég held að ég eigi seint eftir að venjast því að kaupa hluti 4-5 mánuði fram í tímann.
Monday, January 22, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Vona ad litla músin sé ordin gód af flensunni, svona veikindi setja allt úr skordum. Er núna mjög upptekin af thvi ad fullnaegja sukkladilöngun minni dag hvern,med dökku sukkuladi, finnst thad dasamlegt en borda sodin fisk inná milli. Skelltu bara i thig sukkuladi og hafdu svo ysu og kartoflur i kvöldmat, hvort um sig matur sem hreinsar sálina. Sakna thínknúsirúsin mín og hér er líka vetur og mínipils í búdargluggum.
Blessuð.. maður er farinn að halda að þú hafir fengið þig svo fullsadda af þessum innidögum að þú sért farin út og látir þar við sitja?
Vona að ykkur líði öllum vel
kveðjur, Rósa
Post a Comment