Thursday, January 18, 2007






Jæja þá er janúar meira en hálfnaður og ég að skrifa fyrsta blogg ársins.
Við erum löngu komin heim úr frábæru Florida jólafríi þar sem við eyddum jólum og áramótum með Ástu og fjölskyldu og Ragnheiði og fjölskyldu. Það var mikið fjör. Allar fjölskyldurnar þrjár urðu fyrir töfum í byrjun ferðalags út af klikkuðu veðri en vorum öll mætt í hús 23. des.
Þá hófst stíft prógramm af afslöppun, sundi og meiri afslöppun þar til rétt fyrir klukkan 6 á aðfangadag þegar við hoppuðum út í búð og keyptum lítið jólatré og jólakúlur. Held samt að kokkurinn hafi lent í mesta puðinu en Hjálmar sá um að kokka þríréttaða 12 manna veislu sem var alveg delicioso.
Eftir jól fóru allir nema ég og Kristín í að þræða Disney garðana. Ég fór bara með hana í enda ferðarinnar í Magic Kingdom og lét það duga. Á áramótunum héldum við síðan búningapartý þar sem við skemmtum okkur afar vel.
Mikið var gaman að eyða jólunum á þennan hátt. Ég væri sko alveg til í að gera þetta annað hvert ár. Stressleysi, frábær félagsskapur, sól og blíða úti, gæti ekki beðið um meira. Ég hélt ég myndi aldrei segja þetta en ég mæli með að brjóta upp gamlar jólahefðir og prufa eitthvað nýtt.
Takk Ásta, Kalli, Ragnheiður, Hjálmar, Elvar, Villi, Óðinn og Karl Einar fyrir æðisleg jól og áramót.

3 comments:

brynjalilla said...

falleg börn og fallegar prinsessur. Hefði alveg viljað vera með og hefði þá líklega verið Jasmín eða Ariel. Hef alltaf dreymt um að vera annaðhvort með svart eða rautt hár. En elsku Fanney og kó gleðilegt nýtt ár og velkomin aftur til bloggheima.

imyndum said...

Gaman að sjá flottar myndir af fallegu fólki. Það besta við jólin er einmitt að eiga góða fjölskyldu til að deila þeim með, hvar eða hvernig það er gert.
Gott að sjá að þú ert aftur mætt á svæðið í bloggheimum, alltaf gaman að lesa um hvað þið US fjölskyldan eruð að bralla í ykkar lífi, sem er svo skemtilega frábrugðið okkar.

Nýjárskveðjur frá París
Rósa

Anonymous said...

Þið eruð ekkert smá sætar svona uppdressaðar;)
Takk annars fyrir meilið og auðvitað skellum við okkur á hestbak þegar þú kemur.Það er ekki spurning. Þú verður bara að fara beita persónutöfrunum og fara láta express fjúga á milli;;)
Sjáumst