Sunday, February 04, 2007

Margir vinir mínir vita hvað ég hef óskaplega gaman af eyðimerkurpúkaleiknum.
Maggi og Högni þekkja hann undir nafninu Kalla Prent leikurinn. Tvær langar sögur hvernig bæði þessi nöfn urðu til. Verið nú stillt, prúð, góð og sæt og takið þátt í þessum frábæra "leik" bara fyrir miiiiiiiiiiiiiiiiiiiiig ;)


Ef þið yrðuð að velja...

1. ...að borða annað hvort blautan hundamat (þennan í dósunum) eða þurrt naggrísafóður í eina viku og ekkert annað hvort mynduð þið velja?

2. .....annað hvort að sleppa að fara í bað og sturtu eða sleppa að bursta tennurnar í 6 mánuði?

3. ....borða bara nammi í 3 mánuði eða bara kartöfluflögur í 3 mánuði?

4. ....vera í sömu sokkunum í 3 ár eða mega ekki greiða ykkur né klippa ykkur í 1 ár?

5. .....vinna við að þrífa skítug almennings klósett í 1 ár eða leika prins eða prinsessu í Disney World þar til þið yrðuð 65 ára?

6. ....borða 15 ánamaðka eða fara 5x í röð í teygjustökk?

7. ....ekki horfa á sjónvarp í 1 ár eða ekki fara í tölvuna í 1 ár?

8. ....vera föst í moldarkofa með Whitney Houston í 5 vikur eða Michael Jackson?

17 comments:

Fnatur said...

Gleymdi að setja svörin mín við spurningunum.

1. Naggrísafóðrið...hræðileg lyktin af blautum hundamat.

2. Ég vel að bursta tennurnar, vonandi fer hárið að hreinsa sig sjálft eftir einhverjar vikur og ILMVATN...mikið ilmvatn...held það verði þörf á því.

3. Nammi nammi nammi.

4. Sokkana.

5. Disney....vera 64 ára prinsessa það er margt verra en það. Finnst leiðinlegt að þrífa mín eigin klósett hvað þá almennings klósett.

6. Hélt aldrei að ég myndi velja þetta en ég held ég taki maðkana. Ég er svo lofthrædd.

7. Skippa sjónvarpinu. Glatað að búa í útttlöndum og geta ekki haft samskipti við vini og fjölskyldu í gegnum tölvu.

8. MJ, hann öskrar að ég held lægra.

Kv, Fnatz

Magnús said...

1. Veit ekki hvort er verra, geri bara eins og þú myndir gera. Naggrísafóður.

2. Ég myndi fara í bað, held ég gæti ekki sofið á endanum ef ég væri allur skítugur. Frekar verð ég andfúll.

3. Nammi.

4. Safna hári í hreinum sokkum. Ted Bundy var með sokkafetish.

5. Þríf klósett. Færri hálfvitar ofan í manni.

6. Maðkar, er lofthræddur líka en alveg til í að éta alls konar viðbjóð.

7. Ég er netsjúkur og myndi frekar sleppa sjónvarpinu.

8. Þau eru örugglega bæði óþolandi en ég held að það væri meira "comic relief" að hanga með Michael greyinu. Whitney er algjör bredda og krakkhaus en MJ bara lítil sál.

Fnatey, hvort myndirðu... nei, ég get ekki sagt það. Algjört ógeð.

Fnatur said...

Ja hérna Maggi minn það getur nú ekki verið verra en að velja á milli þessa að sofa hjá Vorboðanum eða Kalla Prent mhúahahaha.
Sammála þessu með WH og MJ. Hún myndi pottþétt bara öskra allan tímann á okkur "kiss my aaaaass". MJ myndi kannski segja manni skemmtileg ævintýri af sér og týndu drengjunum í Never Land ugggghhh.
Takk fyrir að svala forvitni minni...ég hafði mjög gaman af því;)

Anonymous said...

úhúhúú..eyðimerkurpúkinn bara mættur ;-)

1. Þurrt naggrísafóður
2. Sleppa baðinu...ma´r á víst að geta orðið "sjálfhreinsandi"
3. Nammi
4. Sleppa klippingunnir..ojjj..sömu sokkar í 3 ár?? Það er ekki HÆGT!!
5. hehehe Snow White comes naturally to me ;-)
6. 15 ánamaðka...geðveikt lofthrædd!!
7. sleppa sjónvarpinu
8. Whitney Houston...MJ creeps me out

Gjössovel,
Ragnheiður

brynjalilla said...

1. Naggrísafóðrið, ekki spurning, ætla líka að fá mér naggrís næsta haust, hann mun borða við sama borð og við.
2.ég sleppi því ða bursta tennurnar, skola þær í sturtunni og tygg Extra.
3.Nammi öðru nafni súkkulaði!
4.Sokkana sem eru ekki keyptir í H&M, hef þá á mér í sturtu.
5.Þríf klósett, ég er engin gerviprinsessa sko.
6.Ég skal borða ánamaðkana af bestu lyst, lýsi því hér með yfir að ég ætla aldrei í teygjustökk.
7.Sjónvarpið má fara veg allrar veraldar en almáttugir minn án tölvunnar vinkonu minnar er ég ekkert.
8.Guð minn góður, er hægt að svara þessu...MJ hann kann að semja lög allavega og er dýra- og barnavinur arg ojbara.

Fanney hvort myndirðu sofa hjá Ólafi Ragnari Grímssyni eða Davíð Oddsyni?

Anonymous said...

Hei má ég líka vera memm?

1..Ekki spurning frekar kornið en hakkaðar ótilgreindar dýraleifar.
2..Af tvennu illu vel ég að sleppa tannburstanum og tygg bara birkigreinar í staðinn. (Aldargömul aðferð við tannhreinsun)
3..súkkulaði, súkkulaði, súkkulaði.
4..Ég er hvort eð er svo úfin svona venjulega þannig að ég kýs að vera í hreinum sokkum takk.
5..Ég er sönn prinsessa og þær geta drepið dreka þannig að það er ekkert mál að þrífa klósett.
6..úff hvar eru þessir ánamaðkar?
7..he get bara horft á úrvalið í tölvunni. Lagó sjónvarp.
8..Iss ég get alveg þraukað með dívum, verra með grunaðan barnaníðing.
kærar kveðjur.

Fnatur said...

Hahahaha þið eruð æði. Enn hefur enginn látað vaða í teygjustökkið.
Varðandi ógeðis sðurninguna hennar Brynju þá vel frekar þann feita og freka heldur en þann væmna og ljóta.


Brynja, hvort myndir þú sofa hjá George W. Bush eða Össa Skarp?

brynjalilla said...

Guð minn góður Fanney gaahagagaaarg, vel Össur hann er með svo sexý vörtur og svo reyndar held ég að hann beri virðingu fyrir fólki og vilji því vel, Bush er náttúrlega bara klikk og svo hef ég heyrt að það sé svo rosalega lítið undir honum...maður verður nú að reyna að hafa einhverja ánægju af þessu hahahhaa!

ps:
Hvort myndirðu lulla hjá Ómari Ragnarssyni eða Hemma Gunn?

Fnatur said...

Brynja mín við skulum bara hafa það á hreinu EKKI ÓMARI. Vel frekar Hemma því þar er alltaf á tali þannig að hann yrði kannski bara í símanum og myndi síðan sparka mér út til að halda áfram að vera í símanum í friði. Miklar pælingar á bak við þetta hjá mér hehe.

Jæja þú byrjaðir á ógeðisspurningunum.
Þá skalt þú velja á milli að lulla hjá Rosie O'donnell eða Michael Jackson?
Mhúahahahaha.

brynjalilla said...

Rosie O´donnell ekki spurning, get ekki hugsað mér að sofa hjá MJ og Rosie er örugglega góð í að vekja unað hjá konum.

En Hors Tappert

http://www.kinoexpert.ru/foto/013551_1.jpg

eða Stephen Hawking?

http://www.businessworld.in/archive/010122/stephen%20hawking.jpg

Anonymous said...

Rosie O´donnel góð í að vekja unað hjá konum??!!
Má ég þá biðja um KOLdimmt herbergi með myrkvunartjöldum og Rosie...þú vogar þér ekki að koma upp undan sænginni!!
Hrrrroooolllluuurrrrrrr!!!!

Anonymous said...

úúú stúlkur og drengir ef valið stendur nú á milli David Hasselhoff og Woody Allen hvað þá?

Magnús said...

Heldurðu að skríllinn stökkvi á Woody Allen? Geðbilun!

Fnatur said...

Ekki spurning kæru systur Tappert og Hasselhoff.

brynjalilla said...

Hasselhoffinn er potttþétt jafn góður og Rosie O'donnell, ekki spurning og svo er hann allavega með græjurnar. En Hvað um:
Jesús eða Hitler?

brynjalilla said...

Mér finnst hræðilegt að hafa borið upp þessa spurningu....svo siðferðislega röng

Fnatur said...

Oj Brynja nú er kominn tími á eitt stórt PASS mhúahahahahaha. Ég neita að svara.