Saturday, February 10, 2007

Kynþokkafyllsta kona vikunnar er..........ég.


1. Er með risa frunsu sem er álíka stór og kleinuhringur.
2. Er með kúlu á enninu eftir að hafa rekið höfuðið á mér í á minn einstaka klaufa hátt.
3. Mega últra súper stíflað nef.
4. Hóst hóst hóst=black lung.
5. Hárið á mér er farið að líkjast hárinu á Dýra úr Prúðuleikunu.
6. Ég er búin að borða svo mikið súkkulaði þessa vikuna að ég er farin að verða í laginu eins og Barbapabbi.
7. Eftir að hafa verið í -20 gráðum í tvær vikur þá er húðin á mér álíka mjúk og skelin á skjaldböku.

Skál fyrir því ;)

6 comments:

brynjalilla said...

Elsku kerlingin mín, ég sendi þér huglægt heitt kakó með rjóma frá Bláu könnunni, bananastykki úr bakaríinu við brúna og einn bleikan úr ónefndri búð í Lúxemborg, ofurknúúúús frá Brynju sem var að baka unaðslega skúffuköku....mhmm og já sendi þér huglægan gómsætan bita af henni að sjálfssögðu.

Magnús said...

Spurning um að senda huglæga ullarpíku til huggunar?

Anonymous said...

Mér sýnist að hammam á góðu baðhúsi væri alveg málið núna.

... eftir og undan skúffukökunni hennar Brynju sem er örugglega svívirðilega djúsí

Farðu vel með þig

Fnatur said...

Ég væri nú bara alsæl ef hans í koti frunsan léti sig hverfa. Þá væri ég mun betur stödd en blessað skrímslið blómstrar enn og síðan er það bara doksi á mán. Takk fyrir góðu kveðjurnar krakkar mínir.

brynjalilla said...

vona að skrímslið á vörinni sé farið í fúlan pytt, takk fyrir alla linkanna elskan mín og spjallið áðan.

Anonymous said...

Hey knúsímús, þú ert alltaf flottust, þoli ekki þegar fólk talar illa um systur mínar og segir þær vera eins og Barbapabba
MIÐ-SYS