Kara frænka og Kristín á leið niður rennibrautina í bakgarðinum.
Nei þýðir bara alls ekki nei.
Þegar ég náði nú síðasta föstudag í litlu frænku mína til Boston þá komst ég að tvennu sem ég vissi reyndar fyrir en það sannaðist enn og aftur. Nei þýðir heldur betur ekki nei og flugfélagið South West er besta flugfélag í Ameríku.
Til að gera langa sögu eins stutta og mögulegt er þá vaknaði ég upp við vondan draum að fluginu mínu hafði verið aflýst frá South Bend til Chicago vegna lítillar bókunar með aðeins nokkurra klukkustunda fyrirvara.
Alls ekki gott mál þar sem frænka mín sem var að ferðast í fyrsta skipti ein átti að lenda í Boston 12:00 á hádegi með Icelandaair og ég var föst um miðja nótt í Fort Wayne Indiana og átti að vera í Boston til að taka á móti henni.
Besta í stöðunni að hringja í flugfélagið og láta þá redda þessu. Ég fann sjálfan mig svitna, fékk létta ógleðis tilfinningu og fann stress-bólurnar spretta fram í andlitinu við það eitt að hugsa til þess að elsku litla frænka mín yrði skilin eftir alein í Boston.
Ég hringdi í flýti í flugfélagið og að sjálfsögðu svaraði ein af þessum vélum sem að eru óþolandi. Eftir að hafa komið blessuðu vélinni í skilning um að ég væri farþegi þá fékk ég loks samband við símacenter í Indlandi. Þar útskýrði ég mál mitt fyrir indælis konu sem endaði á að ýta á einhvern takka sem varð til þess að ég fékk samband við blessuðu tölvuvélina aftur.
Ok, ekkert hægt að gera í því nema spjalla við blessuðu vélina aftur en konan hefur eflaust fengið góðann hiksta.
Loks fékk ég samband við Ahmed sem að bar eftirnafnið mitt óvenju vel fram. Jú jú við getum komið þér til Boston klukkan 5 í dag. Alls ekki það sem ég vildi heyra. Eftir að hafa komið Ahmed í skilning um að ég væri að ná í litla frænku mína, ég vissi "réttindi" mín sem farþegi og að hann myndi ekki losna við mig úr símanum fyrr en ég væri bókuð á flug sem lenti upp úr 10.00 í Boston þá loksins fann blessaður drengurinn flug frá öðrum flugvelli sem að ég gæti brunað á í flýti. Frábært!!!! ég byrjaði að fagna í huganum. Þá þurfti Ahmed að skemma allt fyrir mér með því að bæta við EN......... þú veður að koma til baka upphaflegu leiðina því annars þarftu að borga breitingar gjald.
Ok, en bíllinn minn verður í Indianapolis þannig að ég verð að fljúga aftur til baka þangað því annars er ég fótgangandi í tveggja tíma fjarlægð frá heimili mínu. Já en það er ekki okkur að kenna tilkynnti Ahmed mér. Þú verðu að borga 480$ í breitingargjald og það er ekkert laust flug til baka sama dag.
Arrrrggggg mig langaði að öskra en á einhvern óskiljanlega hátt tókst mér að halda ró minni og tala bara með reiðri röddu en sleppa öskrinu.
Ég sagði Ahmed að þetta væri víst þeim að kenna að aflýsa upphaflega fluginu, ég myndi ekki borga krónu og þeir skyldu borga undir mig og frænku mína hótel fyrir nóttina í Boston.
Já talaðu bara við þá á flugvellinum í Boston og sennilega redda þeir þessu öllu fyrir þig þar (hmmm leit út fyrir að hann vildi losna við mig úr símanum og koma þessu yfir á aðra starfsmenn). Hvaða heldur þetta lið að maður séð.
Aftur þurfti ég að útskýra fyrir þessum ágæta vini mínum hjá United að ég myndi ekki fara að draga litlu frænku mínum fram og til baka á flugvellinum í Boston upp á von og óvön og að hann yrði að ganga frá öllu í símanum núna.
Loksins kom það...............bíddu augnablik. Ég leit á klukkuna og leist ekki á blikuna þar sem ég átti eftir að keyra til Indianapolis og reyna að ná fluginu þar. Högni minn var rokinn á fætur til að prenta leiðbeiningar á flugvöllinn fyrir mig og fylgdist spenntur með Fnetinum rífast við flugfélagið inn á milli.
Eftir 5 mín bið kom Ahmed aftur í símann og sagði þessa yndislegu en samt svo fyndnu setningu "í þetta eina skipti ætlum við að gera undartekningu á reglunum". Þú þarft ekki að borga neitt breitingargjald, getur flogið aftir til Indianapolis og við borgum fyrir ykkur Hótel.
Íííííhaa....ég hafði eiginlega ekki mikinn tíma til að fagna heldur gekk frá málunum, þakkaði fyrir mig, hentist inn í bíl, leit upp í stjörnubjartann himininn og bað englana um að það yrðu ekki margar löggur á leiðinni niður eftir.
Þrátt fyrir að vera tekin í extra "þú ert með margbreyttann miða" tékk og ég hafi þurft að hlaupa að hliðinu, þá var þessi yndislega kona sem tók á móti mér, brosti sínu blíðasta og sagði "andaðu rólega þú ert sú síðasta sem að við munum hleypa um borð". Aftur íhaaa.
Lenti 10:14 í Boston, hafði tíma til að halda áfram þusi við flugfélagið mitt þar sem að reddaði okkur sama dag til baka....(enn og aftur nei þýðir ekki nei) og náði þrátt fyrir allt að pústa í 30 mín áður en elsku frænka mín lenti.
Eftir á að hugsa þá held ég að Ahmed hafi haldið að ég væri að taka á móti 2 ára gamalli frænku minni en ekki 12 ára ;)
Núna höfum við sem sagt þriðju dömuna á heimilinu og allir alsælir með nýja gestinn. Stelpurnar mína vilja gera allt eins og frænka gerir og við reynum að gera eitthvað nýtt spennadi á hverjum degi. Ég finn að tíminn flýgur áfram og að þetta sumar á eftir að líða súper hratt.
Mikið er ég samt glöð að þetta gekk allt upp á endanum ;)
Skál fyrir Ahmed, hann stóð sig eins og hetja.
15 comments:
Skál fyrir þér, glæsileg framistaða.
Færð útnefninguna "kona ársins" í mínum bókum. Þú myndir bjarga þér vel sem hvaða forstjóri sem er og stjórna hinum með mikilli prýði.
jidúddamía Fanney, mér finnst þú mjööööög dugleg að hafa haldið þolinmæði þinni, þú ert svo góð í svona aðstæðum, hefurðu einhverntímann velt fyrir þér að fara í PR? LOve frá Brynju sem var í fyrsta sinn að gera boð í vöru á Ebay.
Hæ skvísur.
Mér fannast nú Ahmed eigi meiri heiður skilið fyrir mikla þolinmæði og góðan framburð á nafninu mínu hahaha.
En takk kæru Rósa, Ásta og Brynja. Þið eruð nú sjálfar mjög miklar ofurkonur. Hver á sinn einstaka og frábæra hátt.
p.s. Brynja fékkstu buxurnar ofursvölu?
Hey Brynja ebay virgin, er ekki búiða ð kenna þér helsta trikkið á ebay varðandi boð? Það er það að best er að bjóða á síðustu mínútunni áður en boðið rennur út. Augljóslega er þetta ekki alltaf hægt en ef maður kemur því við þá kemur það oft ansi vel út. Skella þá inn strax hæsta mögulega boðinu þínu.
Kveðja frá Ástu, Phd í ebay.
Já já Fannsa þetta var ég hérna áðan. Skál
Skál Ásta mín (kannski í Blís;)
ég fékk buxurnar á 10 dollara og er búin að eignast nýtt áhugamál, takk fyrir öll góð ebay ráð:)
Frábært skvísa. Þú kemur með þær til ísl og sýnir mér ;)
Hæ Fanney,
forstjóri, PR snillingur eða barasta rithöfundur. Ég las frásögnina límd við skjáinn, fann sjálf hrollinn og magapínuna. Skál fyrir þér og Ahmed.
Hæ Heiðrún. Takk fyrir skemmtilega kveðjur. Mikið er líf mitt fullt af yndislegum konum sem ég bý allt of langt í burtu frá ;)
Hæ hæ Fanney, megakvabbið bar árangur, er byrjuð að blogga aftur.
Frábært Ásta mín.
Þú ert alveg brilljant!
Maður þarf sko að hafa bein í nefinu til að standa í svona stappi. Það er alveg klárt. Sérstaklega þegar um ræðir eitthvert af þessum stóru batteríum sem bera bara fyrir sig company policy þegar þeim hentar.
You go girl!
Hey Andrea beib. Ertu á ísl eða NJ?
Ég er enn hér í US. Fer "heim" á morgun :)
Post a Comment