Thursday, June 28, 2007


























Níu ára brúðkaupsafmæli.


Jú það hlaut að koma að því. Högni og ég áttum níu ára brúðkaupsafmæli í gær. Eins og svo oft áður þá steingleymdi ég því en Högni kom mér á óvart með því að mæta heim með rauðar rósir, kampavín, ístertu handa okkur og stelpunum, súkkulaði og yndislegt kort þegar ég hélt að hann væri um borð í flugvél á leið til Kanada. Ef ég á að segja alveg satt þá hélt ég að hann væri a leið til Texas en ekki Kanada en mér til varnar þá fer hann til Texas í næstu viku. Ekki nokkur leið að fylgjast með þessum ferðalögum hans. Mikið var yndislegt að láta koma sér svona á óvart. Ég verð að taka mig á og muna eftir 10 árunum á næsta ári og plana þá eitthvað fínt í kringum það ;)

17 dagar í Íslandsferð.

5 comments:

brynjalilla said...

til lukku fnatalíusarnir mínir. þið eigið hvort annað skilið sem endranær.

imyndum said...

;) til lukku með brúðkaupsafmælið, 9 ár ... !!! Rosalega líður tíminn

Anonymous said...

LOVELY- þið eruð yndisleg-falleg mynd sem þú settir á netið - nammi namm - ég er voða spennt að sjá þig - ertu kannski til í eina hvítvín og spjall? SYS

Fnatur said...

Þó það væru tvær hvítvín kæra sys;)
Svo lengi sem það er ekki súrt né þurrt...sem sagt á desert línunni þá er ég glöð. Er minna pikkí á rautt en hvítt.

Love, Fannsa

Anonymous said...

Hæ hæ og innilega til hamingju með þennan merka áfanga. Það er alltaf e-h svo mikill sjarmi yfir svona afmælum;)
Koss og knús