Wednesday, January 09, 2008













Þumalfingur þumalfingur, hvar ert þú?

Í dag vorum ég og yngri dóttir mín að syngja þessa fínu íslensku vísu um nöfnin á fingrunum. All í einu rekur hún tærnar framan í mig og biður um að vísan sé líka sungin um tærnar. 
Ferlega er það nú ósanngjarnt að fingurnir okkar hafa þessi fínu nöfn en aðeins stóra tá og litla tá fá nafngift.
Ég byrjaði á að syngja tásu vísuna um stóru tá, baugtá, löngutá (sem er bara ekkert löng), vísitá (sú tá hefur aldrei vísað mér eitt né neitt) og síðust kom litla tá.
Í annað sinn sem vísan var sungin fengu tærnar bara númer sem hljómaði vægast sagt frekar asnalega.
Tá númer eitt, tá númer eitt, hvar ert þú?
Já við þurfum ekki að fara út í þá sálma meir.
Dóttir mín skemmti sér ljómandi vel yfir öllum þessum útgáfum


Hér með hefst því tásunafnasamkeppni á Fnatablogginu.
Sigurvegarinn fær glænýtt sokkapar í verðlaun.

5 comments:

brynjalilla said...

ég er enn að reyna að finna upp á sniðugum nöfnum, þetta er erfitt en mun vonando koma. love

brynjalilla said...

ég bara fæ ekki neinar almennilegar hugmyndir, sollabollatámína treður sér alltaf af og það er ekki einu sinni mín hugmynd.....gaman að lesa alla póstana þína í gær þegar ég asnaðist til að opna hotmailið mitt sem ég annars opna aldrei. En hmmm búningarnir maður vá, mér finnst svo margir koma til greina, þetta verður erfitt val eins gott við getum skipulegt þetta á nokkrum mánuðum hehe. Sakna þín ljúfan mín eins og alltaf

Anonymous said...

Stóratá
mjóatá
Miðtá
minnitá
litlatá

Kv. Bayley´s gellan

Fnatur said...

Sakna þín líka Brynsý beib.
Já það er ekki seinna vænna að byrja að undirbúa.
Bayleys gellan er sigurvegarinn hún fær nýtt sokkapar þegar ég kem í sumar:)

Anonymous said...

Ég vann!! ´Jibbíí

Hlauparinn mikli
PS get ég fengið hlaupasokka með táfýluvörn?