Allt orðið hvítt.
Það var svo sem auðvitað að um leið og Högni fór til Idaho á skíða"fund" í Sun Valley, þá snjóaði allt í kaf hjá okkur um nóttina. Hildar skóla var aflýst en mínum skóla ekki.
Ég æddi því af stað með báðar dömurnar mínar með mér upp í skóla. Held ég hafi keyrt fram hjá 5 bílum sem voru farnir út af veginum og tveimur slysum.
Þegar ég mætti á leikskólann hennar Kristínar sem að er við hliðina á mínum skóla þá var ég svona heppin að leikskólastjórinn var í svona kátu skapi að hún bauð henni Hildi bara að vera eftir hjá þeim. Stressið rann úr líkama mínum og ég fann gleði og sælu hellast yfir mig. Hildur var alsæl með þetta fyrirkomulag og ég arkaði af stað yfir í skólann minn.
Í leiklist áttum við að fara með einleik án orða. Ég var í svo góðu skapi eftir að þurfa ekki að hafa áhyggjur af því hvað ég ætti að gera við hana elsku Hildi mína að ég bauð mig fram í að leika fyrst.
Í enda tímans tilkynnti prófessorinn að heimavinnan væri að velja einn frægann leikara, stúdera hann/hana og vera tilbúin að leika þá persónu í næsta tíma.
Einhverjar hugmyndir hvaða fægu leikkonu ég get valið?
Má víst ekki vera maður.
Eftir að við komum síðan aftur heim þá voru allar innkeyrslur í götunni minni nema mín og ein önnur svo vel mokaðar að það sást ekki snjókorn á jörðu. Ég skellti mér, Hildi og Kristínu því í snjógallana okkar og upp hófst mikill mokstur. 4 klst, tveimur snjókörlum og hálfbyggðu snjóhúsi síðar gafst ég upp á að moka XX$$$###! innkeyrsluna betur. Hún væri nokkuð vel mokuð á íslenskan mælikvarða en á þann ameríska Ó NEI.
Held bara mokstrinum áfram á morgun og læt mig dreyma um að nágranninn minn hjálpsami verði búinn að klára verkið þegar ég vakna í fyrramálið.
Friday, February 01, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
5 comments:
Penelope Cruz- Hne Hne!
HF
Dugnaðurinn í þér. Þessi snjór hljómar samt pínu freistandi. Væri til í að fá almennilegan snjókarlasnjó. En verð þó að viðurkenna að þó ég hafi áhyggjur af stækkandi vorlaukunum í garðinum þá gleðst ég yfir framtíðarvori. Hhhehe góð tillaga frá spúsa en hmm ég væri til í að sjá þig taka gamla hollywoodstjörnu, Sophia Loren hefur alltaf verið í uppáhaldi. Gangi þér vel.
Hahahaha Knútur yeah right.
Fín hugmynd Brynja að taka einhverja gamla klassíska eða jafnvel einhverja pínu klikkaða. Já ég er voða spennt yfir vorinu líka. Hlakka til að sjá fjólubláa liljurunnann blómstra í fyrsta sinn í vor hjá mér. Hlakka líka voða mikið til að hætta að ganga í úlpu alla daga.
Reese Witherspoon
Ásta sys
Finnst ég mjög heppin í dag að hafa haft eiginmann til að moka innkeyrsluna og líka lítinn göngustíg til að hægt sé að fara með ruslið...
Ég segi eins og Ásta Reese Witherspoon held þú værir flott... ekki öfunda ég þig af snjónum hef haft of mikið af honum í vetur og er ekki að fíla það hummm.. sakna þín skvísa hlakka til þegar sumar kemur að sjá þig og Brynju
Post a Comment