Skóli, skóli og meiri skóli.
Ég trúi ekki að það sé aftur kominn mánudagur. Finnst eins og það sé alltaf mánudagur eða laugardagur og allir aðrir dagar blandast saman í eitt.
Nóg að gera í skólum. Lék Björk í leiklistartíma og allir náðu því hver ég var. Ekkert smá sem að ég þurfti að skríða úr skel minni til að "leika" hana:)
Í vikunni byrjuðu síðan kvartet og kór æfingar fyrir Rossini verk sem að verður flutt ásamt Fort Wayne Philharmonic í lok apríl.
Kórinn var síðan með litla tónleika á laugardaginn sem að stytti helgina hjá öllum töluvert.
Kom loksins í verk að gera eitt og hálft verkefni af þremur fyrir tónlistartölvukúrsinn minn. Hálfnað verk þá hafið er.
Inn á milli skólans á fjölskyldan og gymmið hug minn allan.
Á morgun er ég síðan að fara að syngja Minnelied eftir Mendelssohn á tónleikum fyrir tónlistarnemendur og prófessora skólans. Við erum þrjú sem að komum fram á þessum tónleikum og óhætt að segja að ég er með pínu kvíða í mallanum.
Hildur mín er síðan að setja fram vísindaverkefnið sitt á miðvikudaginn á Science fair í skólanum sínum. Hún er að rannsaka hvaða áhrif mismunandi drykkir hafa á eyðingu tanna. Keypti fyrir þetta verkefni 12 ekta kúatennur á Ebay sem að hafa reynst vel í þessu verkefni.
Á fimmtudaginn er síðan Valentínusardagurinn og fyrir löngu síðan allt orðið rautt og bleikt í búðunum. Ég ætla að reyna að fá hann Högna minn til að færa þennan blessaða dag þar til um helgina. Það hentar svo miklu betur.
Hlakka mikið til næstu helgar þó það sé "bara" mánudagur í dag. Þá verður glatt á hjalla, kannski hent í eina "Brynju-bloggs" köku og gert eitthvað skemmtilegt með fjölskyldunni.
Monday, February 11, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Oh hvað ég vildi ég gæti hlustað á þig syngja, þú munt standa þig eins og í sögu og vá ég verð að segja að ég er impressed, að leika Björk takk, gott val og þið svo dásamlega ólíkar þannig þetta hefur verið heilmikil áskorun fyrir þig. Og svo ertu líka dugleg í ræktinni stelpa, það er eitthvað frábært við að vera íslensk kona Fanney og bloggið þitt útskýrir það, öh já ræktin eh fyrsta vikan byrjaði hjá mér í annað sinn í dag (roðn) íslenska kvennagenið fór í tímabundið verkfall hjá mér nefnilega en er eitthvað að ranka við sér, allavega vonandi fram á næsta kladdkökudag. Knús í hús músalús
þín að eilífu
Hi hi hi...fyndið að lesa hvað er orðið BRJÁLAÐ að gera hjá þér nú loks þegar ég er "taking it easy"...og þó...stund milli stríða - það verður vísast nóg um að vera þegar stubbsi ákveður að mæta á svæðið. Takk fyrir kveðjurnar á Villaammó - það má ekki minnast á ykkur þá er heimtað að fara til Ammmríku ;-)
Hæ skvísur.
Tónleikarnir búnir og tókust bara mjög vel. Ja Brynja íslensku ofurkonurnar verða líka að taka sér pásu og frí.
Það ætla ég einmitt að gera í dag og nota Valentínusardaginn sem afsökun til að troða mig út af drasli:)
Annars tókust tónleikarnir mjög vel og ég var bara sátt.
Ragnheiður, já það er ekkert smá hrikalega brjaááááálað að gera hjá mér hahaha. Endilega bara senda Villa og Elvar með afa Friðrik á ráðstefnu og síðan í smá vetrarfrí til okkar. ávallt velkomnir ;)
Hvernig er annars kjagið?
Post a Comment