Hæ hæ og hó hó.
Langt síðan ég hef pikkað eitthvað inn hér.
Vorið er komið til okkar hér í Fort Wayne. Laufin eru að birtast á trjánum, fuglarnir syngja kátir á morgnana og maður sér krakkana í hverfinu á línuskautum, hjólabrettum og öðru slíku úti á daginn. Mikið léttir það lundina.
Það hefur verið nóg að gera í skólamálum og fátt annað verið á döfinni en að sinna þeim og fjölskyldunni. Endalaust af verkum sem ég þarf að vera búin að læra í enda mánaðarins, en þetta er allt á áætlun. Þrjú af fimm nú þegar tilbúin og er að verða búin að skila öðrum smærri verkefnum af mér.
Í dag er hún elsku Ásta systir mín að hlaupa sitt fyrsta maraþon í London. Dugnaðurinn í henni. Ég er með nettan fiðring í maganum þegar ég hugsa til hennar og reyni að senda henni hugskeyti og aukaorku milli heimsálfa með jöfnu millibili.
Annars ætla ég að fara að hundskast í gymmið núna. Vona bara að karlinn sem er alltaf í "short shorts" sé ekki þar að gera vafasamar dínuæfingar. Fyndið þegar maður er vitni af því þegar blessaður maðurinn birtist á teygjuæfingarsvæðinu, þá allt í einu verða allar dínur lausar einn, tveir og þrír.
Vona að allir eigi góða viku framundan:)
Tveir mánuðir í Íslandsferð.....júhúúúúúúúú.
Sunday, April 13, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
jiminn en gaman, ætlaði bara in á síðuna til að kjólaklámast, svo fínt að nota linkana þína, já ég er ekkert smá stolt af systur þinni til hamingju með hana, kannski getum við einhverntímann fetað í fótspor hennar, jafnvel bókstaflega. Annars gangi þér vel í skólatörninni ljúfan, þekki þetta líf og gútes eftir 2 mán ég og þú, ég og þú
Post a Comment