Tuesday, April 15, 2008

Hinn hressi kórstjóri.

Á síðastliðinn miðvikudaginn var það:
"Ég drep annað hvort sjálfan mig eða hvern einasta sópran í hópnum ef þið syngið þessar línur ekki rétt."

Á föstudaginn:
"Þið sópranarnir eru lang ömurlegasta section í kórnum. Best bara að vera hreinskilinn við ykkur"

Á mánudaginn:
"Á miðvikudaginn skal ég sko pikka út hverja einustu af ykkur og láta syngja þessar línur og ef þið syngjið þær ekki fullkomið þá læt ég reka ykkur úr kórnum og ekki láta ykkur detta til hugar að þið séuð með öruggan sess í tónlistadeildinni því ég mun gera mitt allra besta til að láta reka ykkur úr henni líka."


Allir í svaka stuði:)

12 comments:

brynjalilla said...

jiminn þessi þarf á enduruppeldi að halda, baráttukveðjur þú veist að þú tekur þetta með trompi

Thordisa said...

Flottur stjórnandi ætti kannski að skipta um vinnu fara að vinna í fangelsi hummm ekki láta deigan síga þetta er flott hjá þér stelpa hlakka til að hitta ykkur Brynju í sumar

Anonymous said...

Alltaf gaman í kórnum;)
Spurning um að taka sig saman og senda hann til Íraks.

En annars var svaka stuð á Nýdönsk. Hebbdir bara þurft að vera þarna. Ekki það að ég nálgaðist það að vera aldursforseti þarna inni. ;)
Annars er komin strákur hjá Bjartey ef þú varst ekki búin að fá fréttirnar;)

sjáumst í sumar;))) Anna

Anonymous said...

Hahaha en hress náungi...og talar svona líka lýtalausa íslensku!! Ég er svo aldeilis hlessa...;-)
Til hamingu með maraþonsystu - engin smá töffari!
Kv,
Ragnheiður

Fnatur said...

Hey skvísur.
Takk fyrir kommentin.
Já Ragnheiður, gaurinn er alveg drullugóður í íslenskunni haha.
Annars var hann raddlaus á miðvikudaginn og ekki mikið skárri í dag þannig að hann gat ekki öskrað allt of mikið á okkur. Sjáum hvað setur þegar röddin hans skánar aftur:)
Já sys er nú meiri ofurhetjan:)

Hlakka til að hitta ykkur allar ofurkonurnar í sumar:)

Anonymous said...

Já þetta er nú greinilega ljúflingur mikill.
Afbrigði af Paul Zukofsky á ferð? Sá öskraði víst líka á unga hljóðfæraleikara í Sinfóníuhljómsveit æskunnar.

Til hamingju með afmælið í dag!

Kv. Hallgrímur

Anonymous said...

Mér datt einmitt Paul Zukofsky líka í hug, hann var vanur að öskra svona!
Það var gaman að heyra í þér áðan, til hamingju með afmælið elsku Fanney mín- sjáumst fljótlega!!
LOVE
astaos

Fnatur said...

Hæ hæ Hallgrímur og Ásta.
Takk fyrir afmæliskveðjuna.
Já kórstjórinn minn hefur greinilega farið í læri hjá herra Zukofsky:)

Anonymous said...

Hamingjuóskir með daginn

Kveðja að norðan

Anna

brynjalilla said...

gangi þér vel á morgun elskan

Anonymous said...

Hæ skvís

Ég spurðist fyrir og séra Arnaldur mun 99% vera með túra vikulega í sumar.

Hann er svaka fínn og lagin með krakkana.

Kveðja,
Anna

Magnús said...

Ég vil enga aumingja í mitt lið!