Ég var að lesa yfir fréttir á mbl og rúv og fór að hugsa um hina íslensku bjartsýni. Fréttamenn nota þetta orð allt of mikið að mér finnst. Íþróttaliðin eru alltaf bjartsýn fyrir leiki, alltaf sagt í júróvision að bjartsýni ríki í hópnum, stjórnmálamenn eru bjartsýnir á að sýnar tillögur gangi í gegn, fasteignasalar bjartsýnir á að sala á fasteignum fari að aukast á ný, bændur bjartsýnir á uppskeru. Svona gæti ég lengi haldið áfram.
Mikið er íslenska þjóðin alltaf bjarsýn;)
Wednesday, September 27, 2006
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
6 comments:
björt og bjartsýn já það er samt betra en að sjá hættur í hverju horni eins í Svíar, maður bíður bara eftir því að þeir krefjist þess að börn séu með gönguhjálma. En bjartsýni er fallegt orð ef út í það er farið svo lengi sem maður fær ekki ofbirtu í augun. Takk fyrir spjallið í gær, ég fór glöð að sofa.
Á degi eins og í dag er ekki auðvelt að vera bjartsýnn. Búið að setja tappann í stífluna.
Held annars að Íslendingar séu ekki neitt bjartsýnir og þessvegna teljist það til stórfrétta þegar einhver er það.
Var ekki einhvertíma könnun sem leiddi það í ljós að Íslendingar séu bjartsýnasta þjóð í heimi?
Jú Rósa, ég man eftir að hafa séð þá frétt einhverntíman og man eftir að hafa hugsað að það hlyti af hafa verið mælt þegar þeir voru fullir hehe.
Skrifaði þetta einmitt út af því að ég er sammála því sem Valur sagði hér að ofan.
"Held annars að Íslendingar séu ekki neitt bjartsýnir og þessvegna teljist það til stórfrétta þegar einhver er það."
Já elsku Brynja mín, takk sömuleiðis fyrir skemmtilegt spjall. Ég var búin að senda þér SBD meilið en fékk það til baka í hausinn með skilaboðum um að töf yrði þar til það bærist þér. Vona að það sé komið til þín núna skvísa.
Betri er bjartsýni en svartsýni ...!!!!
Kveðja af Nesinu
Ég er bjartsýn á að svartnættið sem er yfir mér þessa dagana fari að ljúka.
Frú TMJ
Post a Comment