Nú þegar örlítið hefur kólnað hjá okkur og farið að sjást í haustlitina er ekki annað hægt að segja en manni sé örlítið oftar hugsað til fjölskyldu og vina á Íslandi. Nú höfum við búið í 5 ár í Bandaríkjunum og fyrir ca hálfu ári síðan fór ég að finna fyrir auknu rótleysi.
Ég hugsa um hvar við viljum eiga heima til langs tíma?
Hvað er "heim?"
Gæti ég hugsað mér að eiga aftur heima á Íslandi?
Get ég hugsað mér að búa erlendis til enn lengri tíma og sjá fjölskyldu og vini ekki oft?
Arrrrrggggg, já rótleysi getur verið böl hehe.
Annars var ég að spá í plúsa og mínusa við báða staðina.
Plús við Ísland.
1. Fjölskylda og vinir.
2. Fallegu fjöllin og náttúran.
3. Bakríin hehe.
Mínus við Ísland.
1. ALLT VIBBA DÝRT.
2. Myrkur frá nóv-feb.
3. Sjaldan góð sumur.
4. Léleg þjónusta.
5. Kalt.
Plús við USA.
1. Stresslaust
2. Ódýrt að lifa á þeim stöðum sem við höfum búum á.
3. Yndisleg sumur.
4. Ég hef það val að vera heima hjá elsku stelpunum mínum.
5. Nokkuð ódýrt að ferðast um USA.
Mínus við USA.
1. Langt í burtu frá fjölskyldu og vinum.
Ég hef nú oft rætt þessi mál við systur mínar. Jóna segir að við munum ekki flytja heim nema komi stríð eða engisprettufaraldur. Ásta hefur örlítið meiri trú á aðdráttarafli Íslands.
Hvað finnst ykkur sem búið erlendis um þessar tilfinningar? Koma þær upp í ykkur líka eða koma þær bara upp í manni þegar maður hefur verið til lengri tíma?
Hjá mér fann ég ekki fyrir þeim fyrr en eftir fjögur ár.
Þið sem búið á Íslandi, yfir hverju kvartið þið mest?
Þetta voru hressilegar haustpælingar dagsins.
Wednesday, September 20, 2006
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
6 comments:
Kvart kvart segir þú...
uuu myrkur og kuldi það er það sem böggar mig núna mest. Verður eitthvað svo lítið úr deginum. En meðan er bjart þá er alveg ótrúlega fallegt hér fyrir norðan í haustlitunum. Sérstaklega í berjamóunum;) Kostur við að búa úti er hvað er gaman að koma heim;)
Fleiri kostir við Ísland:
Sundlaugar
Íslensk sumarbirta
Eldsmiðjupizza í Bragagötunni
Nings
"OG SVO ALLIR SAMAN"-NÚ SKULUM VIÐ öll vaka saman eina nótt til að kjósa Magna
Fimmvörðuhálsinn
Kjarnaskógur
Þórsmörk
Að getað talað móðurmálið
Gallar
Fáir eiga Ísland
Fyndinn plebbaskapur, þ.e. hvaða bíl átt þú?
Það er ekki göngutúraveður heila 6 mánuði yfir vetrartímann
STRESS-hvert eru allir að flýta sér?
Ásta
Tilhugsunin um að eiga jafnvel aldrei aftur eftir að búa á landinu okkar fallega þrátt fyrir alla sína galla sem þegar allt er á litið gefa land og þjóð m.a. þann sjarma sem fær mann til að þykja svo vænt um það.... fær mig til að hætta að hugsa ... tilhugsunin er óhugsandi, kanski líka þar sem ég sé ekki beint fram á að búa þar aftur eins og staðan er í dag.
Það er hinsvegar enn meira óhugsandi að bjóða manninum mínum sem er doktor í hagfræði að fara að vinna á leikskóla... ætli það sé ekki helsti gallinn við íslenskt samfélag í dag.
'Asta, ég get tekið undir þessa kosti sem þú taldir upp:
Sundlaugarnar
Fimmvörðuhálsinn
Kjarnaskóg
Þórsmörk
Allir að kjósa Magna haha. Það er viss sjarmi yfir því.
Þetta er ég ekki svo viss um að teljist kostir í minni bók.
Nings get ég fengið alls staðar í heiminum.
Pizza, æi finnst þær ekki það merkilegur matur að þær teljist sem kostur.
Íslensk sumarbirta......er hún eitthvað öðruvísi en önnur birta?
Tala móðurmálið, það fer ekkert í taugarnar á mér að tala ekki móðurmálið. Þannig að ég get alveg lifað með því.
Rósa, fram að þessu hef ég ekki fengið þessa sömu tilfinningu og þú að finnast það óhugsandi að eiga ekki eftir að eiga aftur heima á Íslandi. Mér hefur bara ekkert þótt neitt um það. Bara svona tilfinning "já já það er svo sem allt í lagi." En já þú ert vissulega í annari stöðu en ég. Leikskólavinna fyrir doktor í hagfræði, hljómar ekki mjög spennó. En heldur þú að ef hann fengi "góða" vinnu við hæfi (sem er nánast ekki til á Íslandi) og þið mynduð fara "heim" að hann myndi þola myrkrið, kuldann, slabbið og verðlagið?
Myrkrið, kuldinn, slabbið og verðlagið eg held ad tad yrdi helst famennid sem faeri verst i hann.
Allt hefur sina kosti og galla, aetli retta vinnan baeti ekki upp fyrir ta galla sem til stadar eru hvort sem er her, i Egyptalandi eda a Islandi??
æi já ég skil þig svo vel, sérstaklega núna þar sem það verða tímamót hjá okkur í vor og við aðeins farin að hugsa hvað taki við þegar náminu hér í örebro lýkur vor, viljum við halda áfram að búa í Örebro og bara vera, flytja til Íslands eða flytja innan Svíþjóðar þar sem eru einhverjir nýir möguleikar í boði? ísland kallar en ennþá bara í formi reglulegra heimsókna, verð að sjá fjöllin, finna lyktina, vera nálægt sjónum en fyrst og fremst hitta fjölskylduna mína og leyfa börnunum mínum að halda við vináttuböndum. Örebro er einhvernveginn ekki staður sem ég ætla að setjast að á..horfi núna til Lundar og pæli...dæs margt að pæla en eitt er víst að við ætlum að eiga heima á Íslandi í nánustu framtíð, með vinum og fjölskyldu í umhverfi sem er okkur svo eiginlegt og þjált og einhvernveginn staður sem er svo mikið heima!
Post a Comment