Jæja nú er að losna örlítið um bloggstífluna.
Horfði í kvöld á lokaþáttinn í Rockstar Supernova. Fyrir þá sem ekki sáu þáttinn þá var Magni í fjórða sæti. Ekki það að það skipti neinu máli hvort hann var númer tvö, þrjú eða fjögur. Þau hafa öll rokkað feitt og munu vaða í samningum ekki seinna en á morgun.
Magni var svalur þegar hann kvaddi, vældi ekkert og var bara flottur og fínn.
Sá sem ég fílaði síst vann keppnina. Lukas....öðru nafni kallaður "Slefberinn" í minni bók. Hann minnir pínu á spastíska geimveru. Hann gengur með meiri augnskugga en ég og allar mínar vinkonur til samans, var með allt of mikið glimmergloss í kvöld, lítur samt ekki út fyrir að vera hommi og þegar hann syngur þá hljómar hann eins og hann sé með 4 tungur upp í sér ásamt allt of miklu slefi.
Ég hefði miklu frekar vilja sjá Toby stuðbolta, Dilana power rokkgyðju eða Magna ísmann taka jobbið.
Ohhh well life goes on....Slefberinn er eflaust kátur í kvöld.
Wednesday, September 13, 2006
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
11 comments:
Ég er sammála þér,það er eitthvað meira en lítið að þessum gaur og hann fer eiginlega bara í taugarnar á mér. Þeir hafa sennilega valið hann því hann er engin ógn þegar kemur að grúppíunum og verður að gera sér að góðu að lifa á afgöngum; útúrlifuðum silikontröllkonum sem eru jafnvel með meiri augnskugga en hann sjálfur, þessi dvegvaxni, þroskahefti vesalingur og viðrini með meiru. kv Kalli
Já Kalli, veistu að þessari hugsun skaust upp í kollinn á mér með grúppíurnar. Þeir hafa ekki þorað að fá einhvern af ofurtöffurunum, Magna eða Toby...það hefði verið mega ógnun við karlmennsku þeirra......en af hverju tóku þeir þá ekki Dilana í staðinn? Hún hefði látið allar pæjurnar í friði ;)
Kannski of miklar karlrembur til að hafa kvennmann í bandinu...hver veit? Allavegna kaupi ég EKKI disk með Slefberanum og co.
Skúnkurinn vann.
Þetta kom nú samt ekkert á óvart. Hann er svona álíka í útliti og þessir hjómsveitameðlimir. Magni og Toby eru miklu meiri töffarar. Líta líka út fyrir að vera heilbrigðir.
En Fannsa pannsa mín takk fyrir ábendingarnar varðandi kaupin í síðasta meili. Er reyndar ekki enn búin að ákveða mig. Agalegt að vera svona mikil vog;)
HÆ
Í hvaða hljómsveit er Magni í á Íslandi?
Botoxdrottningin
Einhver af þessum "Skítasól" hlómsveitum.
Minnir að hann sé í Á móti sól.
Með sól
Á móti sól
Síðan skein sól
SSS
Jú jú mikið rétt. Á móti sól er það.
Þetta fann ég á tónlist.is
Hljómsveitina Á móti sól skipa þeir Guðmundur Magni Ásgeirsson – söngvari, Sævar Helgason – gítarleikari, Heimir Eyvindarson – hljómborðsleikari, Þórir Gunnarsson – bassaleikari og Stefán Ingimar Þórhallsson – trommari. Hljómsveitin var stofnuð haustið 1995 og Þórir og Heimir eru þeir einu sem eftir eru af upprunalegum meðlimum. Stefán gekk til liðs við hljómsveitina vorið 1997, Sævar vorið 1998 og púsluspilið var loks fullgert þegar Magni bættist í hópinn haustið 1999.
mikið er ég mikill nörd að geta ekki tekið þátt í þessum samræðum, veit eiginlega ekki hver Magni er en er það hann sem söng þarna sæma rokk lagið í júróvisjón?
Nei Brynja mín, svona er að búa í Svíþjóð þar sem öll amerísk ómenning er bönnuð hehe.
lagomlandið mikla það er víst ábyggilegt, verð samt að viðurkenna að ég er orðin húkkt á sænska idolinu, hmm ég stefni hraðbyri inn í sænskt samfélag greinilega
Post a Comment