Sunday, October 15, 2006

10 hlutir sem ég elska og gera dagana mína dásamlegri.

1. Rjómapasta.
2. Sól og hiti.
3. Fjöll.
4. Öll tré, sérstaklega þau sem eru í litaskiptum á haustin.
5. Sundlaugar á Íslandi.
6. Kántrýtónlist.
7. Súkkulaði.
8. Rómó bíómyndir öðru nafni kerlingamyndir, bestar þær sem maður grætur smá yfir.
9. Mynda albúm.
10. Blómálfar.

Það eru miklu fleiri en 10 hlutir sem gera dagana mína litríkari en þetta var það fyrsta sem kom upp í huga. Endilega teljið upp ykkar 10 uppáhaldshluti (ekki persónur) og deilið þeim með mér og hinum.

12 comments:

Vallitralli said...

Mundi vilja fá skýringar á thessu med kántrýtónlistina. Dixie Chicks eda Kenny Rogers?

Fnatur said...

Meira út í Dixie, Rascal flatts, Martina Mcbride, Tim McGraw og miklu fleiri. Kenny er reyndar líka yndislegur en ég hlusta meira spari á hann. Kántrý er kúl ;)

Andrea said...

En blómálfar???
Þú mátt alveg útskýra það fyrir mér :)

Anonymous said...

mmmm já..rjómapasta...MEÐ TÓMATSÓSU!! hi hi hi

Fnatur said...

Andrea, mér hefur alltaf fundist eitthvað svo ævintýralegt og sætt við blómálfa. Þeir eru svo fíngerðir og krúttlegir. Ég stoppa alltaf og skoða betur ef ég sé bækur með fallegum myndum af þeim eða styttur.
Blómálfar eru kúl.

Ragnheiður, þú og þín tómatsósa hahaha. Þið Hildur getið setið með flöskuna á milli ykkar um jólin.


Hvar er síðan listinn ykkar?????

Andrea said...

1. Súkkulaði
2. Internetið
3. Haustlitirnir
4. Ströndin
5. Skreppa til NYC
6. Var ég búin að nefna súkkulaði?? ;)
7. Hjólreiðatúrar og gönguferðir
8. Mynda albúin öllsömul
9. Snjór og kuldi/hiti og sól
10.Íslenskt lambakjöt

Þar hefur þú það Fannsa mín. Það vantar reyndar ýmislegt en Þetta er svona það fyrsta sem kemur upp í hugann hjá mér.

Kv. Andrea.

Anonymous said...

1.Slúður
2.Rauðvín
3.Súkkulaði (Freyju HITT)mmmm
4.Endorfínkast eftir góða æfingu
5.Kaffi kaffi kaffi
6.Miðvikudagar - koma heim í hreint hús m Ajax lykt
7.Ís með súkkulaðiísingu
8.Tásunudd hjá Hjálmari yfir "crappy" sjónvarpsefni
9.Tómatsósa hi hi hi
10. Stillanlega rúmið mitt með nuddi

brynjalilla said...

1. Hafragrautur á morgnanna með fræum, kanel og sænskri kotasælu. Bragðast betur en það hljómar.
2. Chaite þessa dagana, dásamlegt indverkst te með flóaðri mjólk og minnir mann á hlýju og öryggi.
3. Msn, elska að blaðra við vini mína og fjölskyldu.
4. Freyðibað og hvítvín í hendi og munni.
5. Morgnar um helgar þegar krakkarnir skríða upp í.
6. Mjúk tónlist sem gerir mann rólegan, hlusta mikið á Cörlu Bruni þessa dagana.
7. Kúbverskt salsa.
8. Þegar ég er þreytt og önug og Valli kemur óvænt með kerlingamynd handa mér og súkkulaði.
9.Fjöll, jöklar, hafið, náttúran öll.
10. Þú Fanney og fallegir kjólar.

Fnatur said...

Ragnheiður:
"8.Tásunudd hjá Hjálmari yfir "crappy" sjónvarpsefni"
Hahaha dásamlegt, ekki séns að einhver myndi kæra sig um að nudda skrímslatærnar mínar, hvorki eiginmaðurinn, systur mínar, vinkonur né ég sjálf.

Andrea, mikið er ég sammála þessu með súkkulaðið og lambakjötið. Ammi namm.

Brynja:
"8. Þegar ég er þreytt og önug og Valli kemur óvænt með kerlingamynd handa mér og súkkulaði."
Sammála þessu, nema Högni kveikir upp á arninum, og spyr "get ég fært þér eitthvað Fnatur minn?". Það er ljúft þegar maður er grumpy.


VALUR!!!!
HVAR ER LISTINN ÞINN?

brynjalilla said...

hæ dúlla, á ekkert að fara að blogga?

Fnatur said...

Jú um leið og Valur hefur sent listann sinn mhúahahahahahahahahaha. Jú jú þetta er allt að koma.

brynjalilla said...

ég býð eða ég bíð eða ég bið eða ég er komin í svefngalsa, hugsaði til þín í dag þegar ég sá fallega konu sem minnti mig á þig, hún var samt ekki jafn falleg og þú