Wednesday, October 04, 2006

Ásta bað mig um að koma því til skila að það mun koma skítaviðgerðarmaður frá NTL þann 11. okt og reyna að gera við bilunina. Þeir lofa að sjálfsögðu engu um árangur. Einnig er hún að fara til Íslands á morgun 5. okt og verður yfir helgina.


Annars er ég að reyna að kenna yngri dóttur minni henni Kristínu að hætta að segja stinky poo poo um allt sem hún lyktar af. Þetta lærði hún af pabba sínum þegar þau voru úti í garði í sumar að þefa af blómunum og fannst báðum voða sniðugt.
Núna segir hún þetta um allt sem hún lyktar af hvort sem það er góð eða slæm lykt. Ég er því farin að hljóma eins og biluð plata og gömul kerling í hvert skipti sem hún segir stinky poo poo því þá segi ég "nei Kristín góð lykt" aaaaaarrrrgggggg.
Í gærkvöldi var ég til dæmis búin að elda alveg ágætis pasta. Kristín hleypur alsæl að matarborðinu og segir "mmmmmm stinky poo poo." Ég vissi ekki hvort ég ætti að hlægja eða gráta.

5 comments:

imyndum said...

Hljómar eins og skemtilegur leikur hjá ykkur mæðgum ;)og reglan því oftar því fyndnara er greinileg í góðu gildi

brynjalilla said...

dæs, já kannast svoltið vel við þennan húmor, dagrún var einmitt að syngja lag í gær, textinn fjallar um að hlusta á kennarann en allt í einu var útfærslan hjá henni orðin þannig að það eigi að prumpa á kennarann...

Annars hlakka ég svo til að sjá litla skottið þitt, hugsa sér síðast sá ég hana í skírnarkjól!

Vallitralli said...

Thad gaeti verid ad ég hafi átt einhvern thátt í thví ad textanum hafi verid breytt lítillega...

Fnatur said...

Já gat það ekki verið Valli að þú ættir einhvern þátt í þessu.
Síðan lendum ég og Brynja í því að þurfa að útskíra fyrir kennurunum af hverju Dagrún vilji prumpa á kennarann og Kristínu finnist kúkafíla af öllu.

Ég verð nú samt að viðurkenna að ég er sjálf með algjöran kúk og prump húmor og finnst þetta frekar fyndið en ekki get ég látið blessað barnið segja stinky poo poo við öllu og verð því að reyna að kenna blessuðu stúlkunni upp á nýtt muninn á stinky poo poo fýlu og góðri lykt.

Það er gott að þið Bjössi og Knútur getið skemmt ykkur í barnauppeldinu.

Hogni Fridriksson said...

"Man maste fisa pa lararen?" Eda hvernig er thessi skemmitlegi söngtexti?