Tuesday, October 10, 2006

Sá þessa frétt á mbl og varð vel pirruð eftir að hafa lesið í gegnum hana.

Vísindamenn sem vinna við þáttinn Mythbusters á Discovery Channel hafa nú fundið lausn á því hvimleiða vandamáli að smurð hlið brauðsneiðar lendi á gólfinu þegar maður missir hana frá sér. Hún felst í því að smyrja brauðsneiðina með réttum hætti, en hann er sá að smyrja þéttingsfast og hratt því þá myndast lægð í sneiðinni sem ver hana gegn rangri lendingu.

Hafa vísindamenn virkilega ekki eitthvað annað þarfara við tíma sinn að gera?

4 comments:

imyndum said...

Jú vísindamenn hafa í mörgu gáfulegu að snúast þessa dagana. Kíktu á
http://www.pezus.blogspot.com/
06.október síðastliðinn.

Fnatur said...

Takk fyrir þetta Rósa. Nú er ég orðlaus. Annars fékk ég nú létta velgju yfir hikstarannsókninni.

Anonymous said...

ha ha ha þetta þykir mér alveg dásamleg "frétt" - það mætti halda að einhverjir misstu hreinlega alltaf brauðið sitt í gólfið en geti nú brosað hringinn með þessari nýju "lausn" - en er nú ekki eitthvað annað en smurtækni sem hrjáir fólk sem missir alltaf brauðið í gólfið .....?!?

Fnatur said...

"er nú ekki eitthvað annað en smurtækni sem hrjáir fólk sem missir alltaf brauðið í gólfið .....?!?"

Nákvæmlega það sem ég hugsaði Ingveldur.