
Í dag var rigning, grátt og enginn áhugi hjá mér að fara út.
Ég og Kristín skelltum okkar í gymmið í morgum og eyddum þar tveimur tímum en eftir góðan blund hjá henni þá ákvað ég nú að gera eitthvað nýtt.
Við skelltum í Rice Crispice treats, einfallt, súper fljótlegt og skemmtilegt fyrir krakka en samt eitthvað sem ég hef engan áhuga að setja í minn malla.
Á meðan við vorum að þessu þá helltist yfir mig löngun í súkkulaðiköku. Ég ákvað því að prófa að baka súkkulaðiköku úr heilhveiti, Splenda og Egg Beaters (öðru nafni hollari útgáfu af súkkulaðiköku). Að sjálfsögðu var fitulaus mjólk, heitt vatn, vanilludropar og lyftiduft einnig á ferðinni og mér til mikillar furðu kom þessi fallega bragðgóða kaka út úr ofninum.
Ég hef einhvernvegin alltaf haldið að maður þurfi að nota hvítt hveiti í allar kökur. Ég ætla að prufa þetta með fleiri uppskriftir í framtíðinni og sjá hvort maður geti ekki gert sér og sínum glaðann dag með hollara góðgæti.
14 comments:
Þú ert nú meiri fnaturinn.
Æi takk Valur......en sætt af þér;)
ég mæti upp úr hálffjögur í súkkulaðilöku en hef með með mér brúsa með chaitei, sjáumst fnata mín.
eh ekkert lak neitt, köku auðvitað.
Frábær hugmynd að nota heilhveiti, ég á örugglega eftir að að hafa hana bakvið eyrað
Brynja, kannski getum borðað kökuna undir laki mhúahahaha.
Já Rósa endilega prufaðu. Ég var alveg steinhissa á útkomunni.
En þú sniðug. Aldrei hefði mér dottið þetta í hug. Hef reyndar mikið notað bökunar Splenda og það virkar mjög vel, finn varla mun. En heilhveiti!
Er einhver ofurhollusta í gangi? Ásta sys (orðin nettengd aftur)
Svona meðalhollusta. Allavegna um helgar...ofur á virkum dögum ;)
Á okkar heimili var verið að klára að baka mömmukossa og þá var hvorki notað hvítt né heilt hveiti heldur spelthveiti. Mæli með því í allan bakstur. Spelt er eina hveititegundin sem ekki hefur verið kynbætt eða erfðarbætt. Kv. Hallgrímur
Var líka að baka mömmukossa, mín uppskrift er ekki megrandi.
Kv. Ásta
Já ég þarf sennilega að fara í einhverja sérvöruverslun til að fá Spelt hveiti. Hef aldrei prófað að baka úr því. En mikið eruð þið öll dugleg að baka. Ég er ekki byrjuð í neinum smákökubakstri og veit ekkert hvort ég geri eitthvað í þeim málum.
heyrðu takk fyrir mig, það var góð upplifun að borða súkkulaðiköku undir laki með þér en heyrðu viltu svo ekki koma í dag upp úr fimm í sænskt jólaglögg og piparkökur...ætla að vera í nýju stígvélunum mínum...knús
Ég er svoooooo til í sænskt jólaglögg ef það er ekki með hnetum og rúsínum í, reyndar myndi ég nú drekka hnetu og rúsínuglögg bara fyrir þig. Takk fyrir frábært boð, reyni að mæta upp úr 5, ég mun sita þér á hægri hönd í anda og vera í silfur rúllukragabol og svörtum buxum. Settu ca 5 piparkökur á disk fyrir mig.
p.s. það mun ekki heyrast mikið í mér ;)
Happy thanksgiving
Post a Comment