Í morgun þegar ég var að keyra á hraðbrautinni kveikti ég á útvarpinu og haldið þið að lagið Freedom með Wham hafi ekki bara farið að hljóma. Þvílík snilld og bara 10 ár síðan ég hlustaði á það síðast. Að sjálfsögðu hækkaði ég allt í botn, þvílík súper gleði. Eins og þetta hafi nú ekki verið nógu magnað max en strax á eftir Wham kom sænska stórsveitin Ace of base með eitt af sínu bestu lögum "The sign". Ég keyrði dansandi og gólandi í gymmið og en var pínu svekkt að hafa ekki þessi lög á ipodinum mínum (búin að redda því núna). Tók samt gleði mína á ný þegar ég gat hlustað á "Í þessum búðingi er fullt af súðingi" öðru nafni "Funfeitur" með Pláhnetunni. Mikið er gott að vera til á svona skemmtilegum dögum.
Ekki allir í duddi?
Thursday, November 30, 2006
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
jiminn thad er svo gaman ad hlusta a gömul lög, var einmitt ad hlusta a the final countdown i dag, fannst thad gaman en enn skemmtilegra er ad hlusta a apocalyptica sem á hug minn allan nuna thökk se Högna, frabaer, frabaer, frabaer.
Já þeir eru æði....mega snillingar þar á ferð.
Skemmtilegt blogg því það er úr núinu alveg eins og netið! Ég lendi stundum í svona skemmtilegum mómentum úti að aka. Gaman gaman.
Blessaður Orri. Gaman að fá komment frá þér.
Post a Comment