







Síðasta fimmtudag var stóri kalkúnadagurinn hér í feitu Ameríku. Högni tók sig til og var ofur-súper-mega-kani og djúpsteikti kalkúninn úti í garði í miklu vor veðri sem að hefur leikið við okkur síðustu viku. Ég bjó til marenstertu og heimagerðann ís og að sjálfsögðu var allt fullt af tilheyrandi meðlæti með fuglinum. Kalkúnninn kom mjög vel út svona djúpsteiktur, stökkur, fínn og feitur að utan en mjúkur og safaríkur að innan alveg eins og þeir eiga að vera. Áður en við tróðum okkur út af mat fórum við í góðann göngutúr allt of vel klædd, stoppuðum við á hverfisleikvellinum þar sem við hittum nokkrar köngulær og flugur sem að voru alveg ruglaðar hvaða árstíð væri.
Annars er þetta ein stærsta verslunarhelgi hjá könum þannig að ég hef haldið mig frá öllum búðum til að reyna að halda geðheilsunni í þokkalegu lagi. Núna er maður bara að komast í gott jólaskap, ég og Hildur ætlum að baka uppáhalds æskukökurnar mínar í kvöld, mömmukossa. Högna finnst þær bragðast eins og sandur og skilur ekkert í þessu mömmukossaæði í okkur.
Ég væri til í að vita hverjar uppáhalds jólasmákökurnar ykkar eru og endilega látið uppskrift fylgja með ef þið nennið.
Núna er Högni ásamt flest öllum nágrönnum okkar að setja upp jólaljósin úti. Það ætla greinilega flestir að nota góða veðrið til að drífa ljósin upp. Hann og Hildur fóru í morgun og keyptu eitthvað til að bæta í ljósa safnið. Það hefur nefnilega skapast ákveðin hefð fyrir því að þau fari saman í búð fyrir jólin og kaupi eitthvað skraut sem að fer í taugarnar á mér. Því ljótara sem mér finnst skrautið því skemmtilegra er að setja það upp hjá þeim. Í fyrra var það risastór uppblásinn ísbjörn, mér til mikillar gleði þá bilaði hann og er því ekki hægt að setja hann aftur upp í ár en þau hafa örugglega keypt eitthvað annað jafn "sniðugt" í ár til að gleðja mig. Ég verð víst að bíða þolinmóð þar til í kvöld því þau vilja koma mér á óvart. Það verður því gaman í kvöld þegar dimmt er orðið að horfa út um gluggann með mömmukoss í einni og heitt kakó í hinni hendinni og sjá hvaða flikki verður fyrir framan húsið í ár;)
9 comments:
Namminamm mig langar í heimsókn til ykkar!! VIð bökuðum tvöfalda mömmukossauppskrift fyrir viku og eru þær allar búnar.Hlakka til að sjá þig fljótlega,
Ásta sys
Segðu högna að setja meira krem á þær til að þær verði ekki eins og sandur.
namminamm, og uppblásinn ísbjörn ahhahaa. En mikið var gaman að sjá myndirnar og mér finnst þessi kalkúnn girnilegur og líka maðurinn í garðinum sem steikti hann. Keypti mér jólastafi um helgina til að herma eftir þér og dýfa ofan í kakó..missjú litla rúsínan mín
4 myndin.. ég held að þetta sé Högni með littla skott á öxlinni... gatan ykkar í baksýn ég svo sver það að þið búið á Wisteria Lane!
Er ég að hafa rétt fyrir mér eða er ég að misskilja eitthvað?
Neibbs Rósa mín engin vitleysa í þér hehe. Á fjórðu myndinni eru Shrek og Fiona (einnig þekkt undir nöfnunum Högni og Kristín). Það má alveg segja að við búum á Wisteria Lane. Ekki svo ólíkt. Ég er samt enn að reyna að komast að því hvaða desperate houswife ég er haha.
ég er enn ad reyna ad gera upp vid mig hver sé uppáhaldssmákökusortin mín...smjörkökurnar hennar mömmu, dökkar súkkuladibitakökurnar hennar tengdó, hafrakexkökurnar hennar áslaugar systur...hmm ef hun systir mín ser thetta mana ég hana ad setja uppskriftina hérna inn, tharf hana naudsynlega!
Amminamm hljómar vel. Væri til í að fá uppskriftirnar af þeim öllum;)
Hvaða skrímsli drógu þau feðgin heim með sér fyrir þessi jólin?
Hæ Rósa.
Þau drógu með sér ísbjörn á skíðum, hann skíðar og skíðar en kemst ekki neitt (því miður). Málið er að á hverju ári fer ísbjarna auglýsing í loftið hérna frá Coca Cola. Veit ekki hvort þú hefur séð hana en þar eru ísbirnirnir æðislega glaðir á norðurpólnum þegar þeir fá kalt kók. Ég hef alltaf þusað við Högna að þetta ætti að vera auglýsing fyrir heitt kakó og hann hefur skemmt sér vel yfir þessu þusi og gert mikið grín af því. Til að gleðja mig enn meira þá röðuðu þau six pack af kókflöskum fyrir fram blessaðan björninn til að hann væri enn líkari þessum í auglýsingunni.
Post a Comment