Nú eru flestir í jólagjafahugleiðingum. Ég ákvað því að birta lista með nokkrum hugmyndum af gjöfum fyrir bæði kynin.
Fyrir konur:
1. Gjafabréf í nudd, andlitsbað já eða bara bæði.
2. Gjafabréf upp á hreingernigu á húsnæðinu sem þið búið í. Þetta er besta gjöf sem ég hef fengið, konur sem komu og þrifu allt húsið hátt og lágt. Mikið var það ljúft.
3. Miða á leikrit eða tónleika.
4. Fyrir þær sem drekka kaffi. Expresso, Cappuccino, Latte vél. Margar góðar í boði.
5. Körfu fulla af baðvörum. Baðsápu, salti, kúlum, freyðibaði, svömpum, baðkodda já og jafnvel kampavínflösku og súkkulaði með.
6. Lúxus helgi á Spa Hóteli fyrir tvo.
7. Cashmere trefil og vettlinga.
8. Hálsmen.
9. Ilmvatn.
10. Úr.
Fyrir hann:
1. Ferða dvd spilari.
2. Rim Blackberry 7750
3. Digital myndavél.
4. Whisky glasa sett með eðal Whisky flösku með.
5. Nudd og hitadínu fyrir bíla.
6. Gjafakort í Jöklaferð fyrir 2.
7. Prison Break season 1.
8. Lazy Boy stól.
9. GPS navigation system.
10. Lingo Voyager 12 tungumála túlkur.
Hvað er síðan á listanum ykkar?
Wednesday, December 13, 2006
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
9 comments:
Kvennalistinn gefur mér nokkrar hugmyndir. Karlalistinn finnst mér hins vegar glataður. Vantar bara Hummer með vélbyssu og ársbirgðir af amfetamínsterum.
Fyrir hana: Claudia Schiffer handbag sem fæst í Accesorize. Algert æði!!
Ásta sys
Þetta er allt á óskalistanum mínum Fanney en ég gæti hugsað mér að bæta við: tekönnu með síu og piparmyntusúkkualite. Bókum t.d. Svält eftir Knut Hamsun (já það er ekkert grín hann heitir Knútur). Nærfötum, þægilegum, fallegum og munúðarfullum. Þykkum sokkum, helst með mynstri. Íslenskri lopapeysu. Kjóllinn sem ég sá í Sand um daginn. Armbandsúr í staðin fyrir það sem ég týndi um daginn í tívolíunu í Köben, bara með betri festingu. Fallegt dót í nýja húsið mitt t.d. kertastjaki, spiladós eða handklæði. Náttföt sem gott er að vera í á kvöldin kúrandi fyrir framan sjónvarpið, og síðast en ekki síst heimsfriði.
Ohhh Maggi ég var búin að setja vélbyssu og pallbíl inn á listann en henti því út í staðinn fyrir GPS kerfið. Vilt þú eitthvað minna red neck og meira metró eins og úr, skó og ullarjakka?
Það er nú nudd og hitadína í bíla á listanum? Það er nú pínu metró. Já annars eftir að þú sagðir þetta þá leit ég nú yfir listann og sá að hann er kannski meira fyrir tækjakarla. Kannski pínu redneck bragur á honum enda mín búin að búa lengi í þeim ríkjum. Fer að vera spurning um að fá sér trailer í bakgarðinn.
ég gef eiginmanninum handsnyrtingu í jólagjöf. er það OK?
Ef hann hefur beðið um það já frábært, ef ekki þá segir minn karl að það sé álíka og gefa konunni sinni líkamsræktarkort eða hlaupabretti án þess að hún hafi beðið um það.
Ég myndi vilja fá það í jólagjöf ;) ég naga líka enn neglurnar;)
Já ég ég er ekki hissa á að Brynja vilji fá tekönnu. Hún stefnir í eina mestu te-kerlingu sem ég hef þekkt og þekki ég nokkrar góðar. Náttfötin eru líka alltaf yndisleg. Fékk 4 um síðustu jól og hef notað þau öll mjög mikið.
Ásta ég hef ekki séð þessa Claudiu Schiffer tösku. Sendu mér mynd.
jólin eru löngu búin Fanney mín, hvernig var í Orlando?
Jæja, bara fersk í jólagjafapælingum?
Post a Comment