Búin að slá garðinn með 2 ára skott sem aðstoðarmann. Mikið var garðurinn minn allt í einu stór þegar ég þurfti að slá sjálf. Þetta er í fyrsta skipti sennilega frá því að ég var 12 ára sem að ég slæ gras en sem betur fer þurfti ég ekki að raka líka.
Högni er sem sagt enn í burtu og ég verð víst að hætta að leika ósjálfbjarga eiginkonu sem bara "kann ekki að slá gras".
Á okkar heimili nefnist þetta faker.
Ég er til dæmis faker með arininn. Get alltaf kveikt upp í honum þegar Högni er ekki heima en um leið og hann er kominn í hús þá bara kann ég það alls ekki lengur og get ekki lært það.
Hvað eruð þið fakers með?
Svona ekki vera feimin, bara láta vaða. Það eru allir fakers með eitthvað.
Veit til dæmis að Brynja lilla er faker með að "kunna ekki að panta af internetinu".
Tuesday, April 24, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
10 comments:
Hey þetta er flott!! Maðurinn minn segist hafa alveg hreina samvisku og það sé bara ekkert svona sem eigi við hann!! Undravert.
Ég hins vegar er með langan lista. Ég kann ekki að fara út í bílskúr þegar Kalli er heima til að ná í eitthvað ofan í kassa og ég kann ekki heldur að lyfta einum takka í rafmagnstöflunni ef rafmagnið fer. (Rafmagnstaflan er líka úti í bílskúr, vibbakalt þar á veturna)
Meira? Ég kann ekki að slá blettinn og ekki að potta niður blómum.
Kveðja,
SYS
Hann lýgur því mhúahahahaha. Það er eitthvað sem að hann vill alls ekki missa og þess vegna segist hann vera með hreina visku.
Það eru allir fakers haha.
Ég er faker með háaloftið. Kann ekki að kveikja ljósið þar og bara get ekki lært það og þess vegna get ég aldrei náð í neitt þar.
Get ekki skipt um dekk á bílnum og get ekki lært það
Get ekki gert skattframtalið og get ekki lært það
Get ekki borað í vegg til að hengja upp myndir eða annað og get ekki lært það
Get ekki skipt um sprungnar ljósaperur ef ég þarf að fara upp í stiga og ég get ekki lært það...og alveg fullt fleira!
Vá Ragnheiður þú ert algjör ofurfaker hahahaha. Verð að bæta mig og taka þig til fyrirmyndar.
Allt sem er hátt uppi get ég ekki náð í og get ekki lært að fara upp á stól
Ég er heldur ekki mjög sleip í að elda kjöt og á erfitt með að læra það
Edik sósan á sallatið er líka allt of flókin fyrir mig og ég get með engu móti lært hana
Oft á ég líka erfitt með að oppna krukkur... en það er nú líka til að leifa honum að finna að ég þarfnist hans ;)
Maðurinn minn er hinsvegar algerlega óhæfur í þrifum á baðherbergjum, eitthvað sem hann virðist hvorki kunna né getað lært
Já Rósa ég held að flestir karlmenn séu duglegir við að vera fakers með blessuð baðherbergin. Ferlega eru þeir sniðugir.
hæ Fanney skvísa þetta er Þórdís vinkona þeirra Brynju og Rósu. Hef verið að lesa bloggið þitt svona við og við er komin með mitt eigið og búin að setja inn fullt af myndum frá Egyptalandi kíktu endilega má ég ekki setja þig sem link inn á síðunni minn hér er minn http://thordis-arnardottir.blogspot.com/ held ég hafi bara ekki séð þig síðan í Sjallanum með Brynju forðum. kveðja Þórdís
Hæ Þórdís. Búin að kíkja á þessar fínu myndir. Kærar þakkir fyrir ábendinguna.
Já jeminn ekkert smá langt síðan ég sá í nefið á þér síðast. Alveg rétt við skelltum okkur víst í Sjallann...man ennþá hvað var gaman þetta kvöld.
ó mæ, ég er grillfaker, borunarfaker en sannur sögunarfóbisti, svo er ég líka internetfaker eins og Fanney benti réttilega á já og vá ég er sko líka skattafaker og ætla að halda því áfram....knúsíkrús til þín Fanney
Vá ég er skoooo svoooo mikill skattafeiker líka Brynja haha.
Knús, lille Fnatz
Post a Comment