Tuesday, April 03, 2007

Nú er vorið komið, laufin farin að koma á tréin og blómin farin að blómstra. Allir í götunni byrjaðir að slá grasið sitt. Yndisleg tilfinning. Ég rakst á fyrstu köngulóna í bílskúrnum í dag og var bara glöð að sjá hana. Hjálpaði henni út í gras á meðan Kristín Bergrós fylgdist tortryggin með. Góðu göngutúrarnir um hverfið byrjaðir aftur og ég alsæl með það.
Ég ætla að láta eina góða mjög fljótlega "heilsu/BFL" uppskrift fylgja hérna með ef ykkur langar í eitthvað hollt og mjög gott.

Fljótlegur og einfaldur salsa fiskur ala Fnatz.

4 lítil fiskflök
Lítil kotasæludós low fat eða fat free (ca 4-5 msk)
1 krukka salsa mild (ef þið eruð hrifin af spicy mat þá getið þið keypt hot salsa)
1 bolli (ca 100gr) fat free mozarella ostur (má sleppa)


Aðferð:
1. Hitið ofninn 200 gráður.
2. Spreyið eldfast mót.
3. Leggið fisk flökin í mótið, kryddið eftir smekk (þarf ekki mikið krydd út af salsanu en ég nota smá hvítlauksduft, tómata og basil krydd).
4. Hellið saman í skál salsa+kotasælu+mozarella (ef þið ætlið að nota hann) og hellið yfir fiskinn.
5. Mótið inn í ofn í 20 - 25 mín.

Gott með brúnum hrísgrjónum eða bökuðum niðurskornum kartöflum og fersku spínat salati.

3 comments:

Anonymous said...

Þarf endilega að prófa þessa uppskrift. Hljómar mjög vel. Kær kveðja, SYS

brynjalilla said...

amminammianamm, er ad stilla mig í gírinn aftur, páskaeggin eru loooksins búin!

Anonymous said...

Sæl Fanney mín og takk fyrir kíkkið.
Mig langar bara til að segja að þér er það alltaf velkomið að kíkja í heimsókn. Þarft sko ekki að stelast eins og þú kallar það.
Ég hef bara gaman að því að fá að heyra frá þér.
Verð nú einnig að viðurkenna að ég les þitt blogg alltaf reglulega og finnst það mjög gaman. Elska að lesa blogg hjá fólki sem býr erlendis og fá smá innsýn í lifið þar.
Langar reyndar til að spyrja hvort ég megi ekki setja link inn á síðuna þína á mína. Væri það í lagi?
kær kveðja