Mynd 1. Kristín Bergrós útimús.
Myndi 2. Á leiksýningunni.
Mynd 3. Hildur Theodóra með kennaranum sínum.
Ég held ég sé komin með súrefniseitrun. Kristín Bergrós vill vera úti alla daga. Ég þarf að múta henni til að koma inn og það er hætt að sjást í þvottakörfuna fyrir þvotti því engin svokölluð húsverk komast í verk vegna afar mikillar útiveru. Ég veit ekki hvernig þetta fer ef það verður sólríkt og rigningalítið sumar. Við verðum bara að ráða okkur maid því ég verð í fullu starfi við að vera úti.
Jú mikið rétt blessað vorið sem kom vel fyrir páska og fór svo í fílu yfir páskana er komið aftur í heimsókn. Stuttermabolir, stuttbuxur, pils og kjólar ráða ríkjum, alveg hreint yndislegt.
Högni minn er núna í Þýskalandi að drekka bjór og borða Priiiizzelííííí (eins og þeir segja í Bayern). Síðan fer hann til Ítalíu á morgun á meðan er ég í Fort Wayne INDIANA en nei ég er ekkert öfundsjúk enda Ítalía þekkt fyrir að vera ljótt og leiðinlegt land með vondan mat. Ekkert að skoða þar og ekkert að gera. Já ég bara hreinlega vorkenni honum að vera þarna.
Ég ætla bara í staðinn til Las Vegas, Florida og Íslands. Já það er miklu betra. Ó nei ég er sko alls ekkert bitur yfir þessari Ítalíu ferð ;)
Annars var hún Hildur mín að spila á sínum fyrstu tónleikum í gær í skólanum sínum. Fyrir þá sem ekki vita þá er hún að læra á rafmagnsgítar. Þetta voru alls 8 nemendur sem spiluðu. Sex krakkar á píanó en Hildur og einn piltur á gítar. Hún stóð sig mjög vel, var miklu öruggari með sig heldur en ég var þegar ég spilaði á fiðluna hér í denn. Hélt takti og var með hreina og fína tóna.
Á eftir tónleikunum var þetta glæsilega söngleikrit þar sem nemendurnir í hennar árgangi voru með sýningu. Þetta voru fjórir bekkir og ótrúlegur metnaður sem lagt var í allt. Tólistakennarinn greinilega búin að vinna fyrir kaupinu sínu. Já ég viðurkenni það alveg að ég táraðist þegar þau sungu öll rólegt lag sem fjallaði um vinskap og var búið að kenna þeim öll orðin í laginu á táknmáli. Greinilegt að maður vanmetur alltaf þessi elsku skinn og hvað þau eru fær um að læra. Í kvöld ætlum ég og Hildur að horfa á Dumb and dumber saman og á morgun er spáð 25 stiga hita og sól þannig að það stefnir í eina stóra útiveru helgi. ÍTALÍA HVAÐ!!!!!
6 comments:
Þið eruð nú heppin að geta verið svona úti í sól og blíðu. Hér er alltaf golufjandi og það kaldur. Frábært hvað Hildi gengur vel í tónó. Hvenær setur maður annars svona skvísur í tónó?
SEE YOUU
Elsku Fanney sys-TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ!! Sakna þín mikið og vildi að ég gæti eytt deginum með þér.
Knús Ásta
Til hamingju með afmælið! Nú væri gaman að sitja og spjalla um landsins gæði og Hemma Gunn.
já ok ekki gleyma helvítis bögbidraginu, sú setning lifir lengi kaeru vinir. Til hammó med ammó elsku Fanney og mikid áttu flottar stelpur. Mér finnst Hildur svo dugleg, rafmagnsgítar, hún raedst ekki á gardinn thar sem hann er laegstur.
TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN;)
Takk fyrir allar kveðjurnar kæru vinir og elsku systir. Gott að eiga svona marga góða að.
Knús og kossar, El Fnatzí
Post a Comment