Það er óhætt að segja að mikil spenna ríki á heimilinu. Búið er að fylla eina ferðatösku og er byrjað að raða niður í tvær til viðbótar.
Hlakka mikið til að fá mér anísstykki (já Ragnheiður ekki einu sinni reyna þetta með blessaða anus húmorinn þinn:) og kókómjólk þegar ég mæti til Akureyrar. Get líka ekki beðið eftir því að fá fiskibollur með soðnum kartöflum og smjöri. Já mín bara pínu svöng:)
Annars er bara milt vor hér í Fort Wayne. Ég og Kristín Bergrós njótum nú lífsins eftir að við komust í sumarfrí og erum duglegar að fara í mollið, bókasöfn, kaffihús, krakkasöfn og í góða göngutúra.
Jæja ætla að fara að fá mér morgunmat.
Vona að helgin framundan verði góð hjá öllum.
8 comments:
Oh come on....ekki ræna mig þessu saklausa og klassíska gríni ;-) Langar þig ekki að markaðssetja þetta "góðgæti" í henni ameríku? Kalla þetta "anal pie" eða e-ð sniðugt??
Knús, Ragnh.
Hæ hæ sæta skvís,
Það verður gaman að sjá þig og dúllurnar þegar þið komið norður. Guðrún Brynja notar öll tækifæri til að vera í fína kjólnum sem þið gáufuð henni. Þannig að aldrei að vita nema hún skelli sér í hann og taki nokkra Sherly Temple takta..
Stemmning og stuð
Anna
Ragnheiður ofurprinsamamma...held ég sleppi þeirri vafasömu markaðsetningu haha.......ANAL pie....það er ógeðslegt nafn.
Hæ Anna mín. Við bókum 3 miða takk á Sherly Temple sýninguna:)
oh hvað ég hlakka til og öfunda þig að vera búin í skólanum, hugsa til alls þess sem við ætlum að bralla jihaaaa
Hey...auðvitað er anísstykki bara "piece of ass" uppá amerísku og líka miklu markaðsvænna nafn!!
Ekkert að þakka ;-) en ég reikna þá með rausnarlegum jólagjöfum þegar $$$ fara að hrynja inn hjá þér!!
3 vikur það er ekki mikið og líður hratt. Hlakka til að sjá ykkur og hlakka til 21 júní í píuboðinu :-)
hvað með hunangsstykki? þau standa nú líka fyrir sínu??
sys
Hunangstykkin eru alltaf klassísk....amminamm en enn betra eru litlu marzipanstykkin með smjörkreminu og sultunni innan í. Mmmmmm nú er mín virkilega farin að hlakka til að að koma.
Post a Comment