Í morgun klukkan 6.30 leit ég svona út.
Já ég var tilbúin fyrir síðasta prófið mitt sem var í theater kúrsinum mínum. Þar lék ég þrítuga blaðakonu í leikriti sem á að gerast á árunum 1958- 1960.
Hildur fékk að mæta til vinkonu sinnar klukkan 7.00 í morgun og ég og Kristín brunuðum upp í skólana okkar.
Það er óhætt að segja að mér hafi liðið hálfkjánalega þegar ég gekk inn á leikskólann hennar Kristínar svona upp á stríluð með allt of mikinn 60's eyeliner klukka 7.30 í morgun. Passaði ekki alveg inn í sveitóstemminguna hér í maísakra-fylkinu (já já búin að laga kornakravilluna þökk sé Magnús ha ha:)
Allt gekk vel og ég búúúúúúúin í öllum prófum.
Á reyndar eftir að syngja á einum kórtónleikum um helgina en það er ekki svo slæmt:)
Núna get ég því bara einbeitt mér að því að pakka í rólegheitum fyrir íslandsferðina okkar og verið úti í garði og notið blíðunnar.
8 comments:
Kornakra? Það er greinilegt að þú hefur ekki tekið út mikinn tíma í Nebraska. Eintómir kornakrar, já og reyndar bensínstöðvar líka.
þú ert glæsileg og til hamingju með að vera búin, viss um að margir hausar hafi kíkt eftir þér í morgun, njottu veðurblíðunnar
Fanney mín til hamingju með próflok og vá hvað þú ert glæsileg, flott og falleg!!!
Kv. Sara
Hahahaha Magnús.....svona er að vera orðin ofur kani. Ég var með "corn field" í huga þegar ég skrifaði þessa frábæru þýðingu kornakrar. Átti að vera maísakrar haha.
Glæsileg stelpa ekkert smá þú hefur rúllað þessu upp og allir hafa horft á eftir þessari gullfallegur íslensku stelpu. Hlakka mikið til að sjá þig!
Búúúúutiful :-)
Til hamingju með að vera búin í prófum krútta. Tel niður dagana
ABBA - Honey Honey :)
http://www.youtube.com/watch?v=U-mVcS4TYhM&feature=related
Happy ever :)
Take care !
"There's a shimmer in your eyes
Like the feeling of a thousand butterflies
Please don't talk, go on, play
Andante, Andante
And let me float away" :)
ABBA Andante Andante
http://www.youtube.com/watch?v=OOAHtf81Hwo
God bless you :)
Post a Comment