Tuesday, June 13, 2006

1. Morgunstund gefur gull í mund.
Hvaða andsk....... MUND er þetta??

2.Ég fór bara út um hvippinn og hvappinn.
Hvaða andsk.... hvippur og hvappur eru þetta?

3. Ég ætla í göngutúr.........af hverju TÚR?

4 comments:

Vallitralli said...

Get bara ekki látið vera að svara spurningum, þó allir aðrir viti svarið líka.

Mundur merkir "hönd". (Morgunstund gefur því gull í hönd)

Hvippur merkir "smálaut" eða "grösugur engjablettur". Getur reyndar líka þýtt "duttlungur" eða "einkennilegt uppátæki".

Hvappur merkir m.a. "dalverpi" eða "laut".

(Þannig fer maður út um engi og dali)

Túr er svo gott og gamalt orð sem merkir t.a.m. "ferð" og til er í einhverri mynd í flestum (eða öllum) germönskum málum.

(Gönguferð þýðir þetta þá).

Fnatur said...

Takk Valli minn fyrir þessi bráðskemmtilegu svör. Þetta er samt alveg mega asnalegt þetta með hvippinn, hvappinn, túrinn og mundina.

brynjalilla said...

Elsku Fanney, takk fyrir yndislega gjöf. Ég las kortið og veistu ég táraðist yfir því sem þú skrifaðir. Þer tekst alltaf að snerta mig þó höf skili okkur að. En ég segi bara sömuleiðis, þú veist hvað ég á við!

Fnatur said...

Verði þér að góðu Brynsí beib. Skemmtu þér nú vel um helgina skutla.
Knús og kossar, Fnaturinn þinn.