Monday, June 12, 2006

Inn og út.
Jæja nú er Högni farinn til Chicago og mega stelpnavika fram undan. Ég dreif mig í morgun eins og alltaf á virkum dögum (stundum á laugardögum líka) í gymmið. Þar fæ ég "me time" á meðan Kristín og Hildur hitta aðra krakka í barnaherberginu. Á eftir förum við oftast (ef það rignir ekki) á stórann kastala leikvöll sem er beint fyrir utan gymmið mitt. Ég er í Jesú gymminu í Fort Wayne en það heitir YMCA og rokkar feitt. Í dag var síðan bókasafnsdagur en þangað förum við 2x í viku. Hildur hélt sig að sjálfsögðu við skordýra-, hákarla- og slöngubækur. Hún og Kristín Bergrós eru duglegar við að fara saman út með pödduboxið hennar Hildar út í garð og fylla það af alls konar furðudýrum.
Annars ætla ég að láta ykkur vita nýjustu fréttir af því hvað er "inni" og hvað er "úti" í sumar.

Ekki cool lengur:
1. Stór gerviblóm í hárið (ef þú ert undir 7 ára þá sleppur það kannski).
2. Tásu hringir....að mínu mati hafa þeir alltaf verið ljótir.
3. Hliðar cleavage (fyrir þá sem misstu af þessari tísku og vita ekki hvað það er þá er það þegar það sést í hliðina á brjóstin á þér).
4. Stuttir sargons utan um bikiniin ykkar.
5. Hot pants ala Jessica Simpson.
6. Vera kaffibrúnn af gervibrúnku.
7. Vera með stærri sólgleraugu en bikini toppurinn þinn.
8. Uber low rise gallabuxur.
9. Stuttir bolir sem sáta sjást allt of mikið í magann.
10. Súper skær naglalökk.

Súper cool núna:
1. Föl pastel naglalökk
2. Mikið máluð augu, lítið málaðar varir.
3. Coral kinnalitur
4. Japanskir kimino (þeir eru að koma og eru vibba flottir, trust me)
5. Hint af brúnku sem er hraustleg en ekki feik.
6. Allar gerðir af messy hártöglum.
7. "Síðar" stuttbuxur, klassí sem ná rétt fyrir ofan hné.
8. Röndóttir sailor polo bolir.
9. Hvítt, hvítt og meira hvítt (kjólar, bolir, buxur...you name it)
10. Frotte pils (ekki mini) yfir bikini.

Að lokum af því að það er að koma sumar á Íslandi og margir að fara að kaupa brúnkukrem og þess háttar þá eru þetta þau bestu sem ég hef prufað og nota.
1. Banana boat light/medium.
2. Fake bake
3. Estee Lauder Self Tan 1
4. Neutrogena moisture rich sunless tanning medium
5. Lancome Flash Bronzer Glow n wear.

Strákar næst skal ég blogga einhvern fróðleik handa ykkur ;)

6 comments:

brynjalilla said...

er algjörlega sammála þér með tásuhringina og þakka þér fyrir góðar og nýtar upplýsingar, alltaf gaman að spá í inandout! Hér er rigning og skítkalt sem sé kominn vetur aftur á Íslandi eftir sumar sem stóð í 2 daga eða svo. Var annars að hafa smá áhyggjur af pakkanum heldur þú nokkuð að hann sé týndur, ég átti nefnilega von á pakka frá Svíþjóð sem búið var að lofa að yrði kominn fyrir 9. júní og ekkert bólar á honum ætli póstkerfið sé að fara fjandans til!?

Fnatur said...

Var að rifja upp með Ástu sis að póstkerfið á Íslandi fer norður og niður á sumrin þegar sumarliðið hefur störf. Ég hef sko heldur betur lent í öllum fjandanum hjá íslenska póstinum á sumrin aaarrrrggg. Jónu pakki er heldur ekki kominn. Ég ætla að hringja í póstinn á morgun og reyna að komast að því hvað sé í gangi. Þetta átti að koma 6.-8. júní, eitthvað skrítið í gangi. Ferlega fúlt.

Magnús said...

Drífa sig að koma með karlatískuna, ég stend nakinn hérna.

Vallitralli said...

Bíddu ... var þetta ekki karlatízkan?

Anonymous said...

Þetta er einmitt það sem mig vantaði! Nú veit ég hvernig ég fer að því að tolla í tískunni í sumar.

Anonymous said...

Þetta er einmitt það sem mig vantaði! Nú veit ég hvernig ég fer að því að tolla í tískunni í sumar.