Hún Hildur Theodóra bauðst til að skúra elhúsið og baðherbergin fyrir mig í dag. Jú jú ég leyfði henni það og ákvað að láta hana alveg eiga sig með þetta verk. Þegar hún lauk við skúringarnar ilmaði allt og var eins og ég hefði sjálf verið að þrífa og á eftir sagði hún "mamma, það er svo gaman að búa með þér og fá að gera svona skemmtilega hluti". Jú jú mikið er maður skemmtileg mamma að leyfa stúlkunni að þrífa húsið. Best að njóta þess á meðan það endist.
Annars er 17. júní á morgun. Kolla vinkona sem að býr í Chicago kemur í heimsókn og hver veit nema ég baki eina köku í tilefni dagsins, ég á ennþá nokkra svona litla íslenska fána til að skreyta kökuna með sem að Ásta systir sendi mér einhvern tíman. Það er því skemmtileg helgi fram undan og spáð 32 stiga hita og sól.
Ég vil nota tækifærið og óska nokkrum vinum til hamingju með afmælið. Elmar og Kristófer í NJ til hamingju með afmælin piltar. Brynja vinkona á síðan 35 ára afmæli 18. júní. Innilegar hamingjuóskir með það kæra vinkona.
Vona að allir eigi skemmtilegan 17. júní.
Friday, June 16, 2006
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
14 comments:
takk fyrir afmæliskveðjuna dúllan mín, er enn að hlæja að tilburðum mínum í gær til að finna góðan stað til að dansa á hér á Akureyri. Vélsmiðjan er líklega sorglegasti skemmtistaður á jarðríki, Kaffi Akureyri er enn að spila grease syrpuna held að kaffi amour hafi sigrað en svo sem ekki með yfirburðum. Borðaði hinsvegar yndislegan mat í góðum félagsskap á la vita bella og drakk hvítvín frá toscana með. Það klikkar aldrei.
En stuðið heldur áfram, útskriftarveisla, grillveisla og afmælisveisla í dag svei mér þá alla mína daga, ær og kýr!
Æi ég verð nú að játa það að þetta síðasta komment frá Brynju drap svolítið niður Akureyrarheimþrána mína, oft má satt kyrrt liggja.
Hjartans kveðjur,
Ásta fiðla
Hæ! Gleðilegan þjóðhátíðardag! Ég held hann hátíðlegan EIN í EINdhoven. Sorglegar samvistir við kóngulær og einhverjar bjöllulegar pöddur. Í reyndar dýrindisveðri og síðum stuttbuxum ;) Hjúkk!
Gaman að lesa bloggið þitt!
Heiðrún, gaman að sjá þig hér. Væri alveg til í að lesa blogg eftir þig.
Gleðilegan 17. júní!!
Ásta
Fanney, hver er orðsyfjafræðin á bak við Fnatur?
kv Kalli
Hæ Heiðrún. Vona að þú hafir það gott í Eindhover þú þú sért ein þar haha.
Gaman að fá 17. júní kveðju frá þér kæra vinkona.
Til klakagengisins:
Frábært að heyra að þið hafið það gott á klakanum. Vona að Coco losni fljótlega úr "fangelsinu" og geti verið glöð og sæl með ykkur.
Kær kv, Fanney
Ásta, þú ert orðsyfjuð.
Takk fyrir kveðjurnar til strákanna skvís :o)Ég kem þeim til skila.
Við ætluðum að mæta í 17. júní partý hérna rétt hjá í PA í gær, en það var blásið af sökum veikinda gestgjafans. Svo vorum við innilega ekki að nenna að dröslast með lest til NYC, fréttum að þar hefði verið eitthvað 17. júní húllum-hæ.
Svo við gerðum bara gott úr þessu hérna heima, enda fylltist hér allt af strákum uppúr hádegi. Ekki leiðinlegt það, amk. ekki fyrir afmælisbarnið ;o)
Kv. NJ-Gengið.
Voru Hattur og Fattur í Múminálfunum?
Fattur breyttist einhvurnveginn í Fnatur. Er það rétt?
Kveðja,Ásta orðsifjaða.
PS Eru börnin ykkar ekkert farin að búa til nýyrði í íslensku?
Hér er okkar topp 3 yfir nýyrði sem minn tvítyngdi sonur hefur búið til:
1. Eyrnalingar (eyrnalokkar)
2. Reykjari (sígaretta)
3. Víkingur (unglingur)
Kalli "stóri":
Jú sko Fnatur varð til af Högna. Það er komið af einhverjum Hattífnöttum úr Múmínálfunum. Upphaflega var ég því Hattífnatt, einn daginn breyttist það yfir í Hatífnat og síðan fór það yfir í Fnat og hefur verið fast við mig síðan ever since.
Valur og Brynja vinafólk okkar gáfu mér meira að segja einu sinni bol sem þau höfðu látið sérprenta á Fnatur að eðlisfari. Hann var rosa kúl, á hann samt ekki lengur því miður enda margra ára gamall. Þetta er því sagan af Fnatinu streka og ógurlega hehe.
Brynsí beib er 21 árs í dag hahahaha (you wish honey) og örugglega skelþunn. Til hamingju með öll flottu árin.
Kossar og knús.
Fannsa
Andrea:
Já við gerðum ekki neitt í tilefni 17. júní. Kolla var hér og við molluðumst eitthvað og vorum pínu þreyttar eftir að hafa setið öll út á palli langt fram á nótt í yndislegu veðri. Spiluðum síðan deperate housewife spilið um kvöldið og enduðum í kana. Já ég setti bara kveðju sjálf hérna til gauranna þinna því Elmar var eitthvað fúll og eyddi kveðjuni til þeirra sem ég hafði skrifað í gestabókina ykkar. Heldurðu að það sé nú mhúahahahaha.
Fínn helgi
Kv, Fannsa.
KV, Fannsa
Heyrðu Fnatur,
Drífa sig að blogga meira
Ásta
Post a Comment